Neyddust til að nota árásarhnapp 3. nóvember 2011 10:00 Læti Ólætin og virðingarleysið hjá ungmennum sem halda til í anddyri Samkaupa hefur aukist mikið síðan kreppan reið yfir, segir Ragnhildur Vilhjálmsdóttir verslunarstjóri (til hægri). Mynd/DFS.is
Starfsmenn í verslun Samkaupa á Selfossi óttuðust um eigið öryggi vegna skrílsláta ungmenna í versluninni á sunnudagskvöld og notuðu árásarhnapp til að kalla til lögreglu. „Það voru gríðarleg læti á sunnudagskvöldið og starfsstúlkurnar voru orðnar hræddar og pirraðar,“ segir Ragnhildur Vilhjálmsdóttir verslunarstjóri. Hún segir unglingana hafa barið í afgreiðsluborðin, rifið kjaft við starfsfólkið auk þess sem stolið hafi verið úr versluninni. „Það þýðir ekkert að hringja í lögregluna og biðja hana að skakka leikinn, þeir segjast ekki hafa mannskap til að koma,“ segir Ragnhildur. Starfsmennirnir hafi því neyðst til að nota árásarhnapp sem aðeins eigi að nota sé ráðist á starfsmennina. Unglingar hafa lengi safnast í anddyri verslunarinnar á kvöldin, en hafa yfirleitt verið til friðs, segir Ragnhildur. Undanfarið hafi hins vegar ófremdarástand ríkt. Eftir atburði helgarinnar verður öryggisvörður fenginn til starfa í versluninni á ákveðnum tímum dags. Ragnhildur segir lausnina verða að vera þá að foreldrarnir tali við börnin sín. „Það er okkar, foreldranna, að sjá til þess að unglingarnir hagi sér eins og fólk, ekki lögreglu, öryggisvarðar eða mitt sem verslunarstjóra.“ - bj
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira