Hækka verð í sund og táningar á fullu gjaldi 1. nóvember 2011 05:00 Gjald fyrir staka sundferð í Reykjavík er nú 96 prósentum hærra en fyrir sjö árum. Starfshópur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vill að gjöldin hækki verulega til viðbótar svo að íbúar utan svæðisins borgi hærra verð sem endurspegli kostnaðinn betur. Heimamenn geti keypt afsláttarkort.Fréttablaðið/Stefán „
Með þessu móti er hugmyndin að ferðamenn og aðrir sem eru búsettir utan höfuðborgarsvæðisins greiði gjald sem endurspeglar betur rekstrarkostnað sundstaða," segir starfshópur á vegum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um þá tillögu sína að hækka verulega gjald fyrir stakar ferðir í sund. Starfshópurinn undirbýr breytingar á íþróttastyrkjum og rekstri íþróttamannvirkja og sundlauga á höfuðborgarsvæðinu. Nýta á betur tekjustofna sem felast í þessum mannvirkjum, auka samræmi og lækka rekstrarkostnað með samnýtingu og sameiginlegum innkaupum. Markmiðið með því að hækka gjald fyrir stakar sundferðir verulega er að fá íbúa höfuðborgarsvæðisins til að kaupa frekar afsláttarkort en stakar ferðir. „Jafnframt er lagt til að skoða mörk á barnagjaldi og færa það aftur til tólf ára aldurs í stað átján ára," segir í tillögu starfshópsins, sem einnig vill skoða hvort gjald fyrir stakar ferðir verði mismunandi eftir þjónustu sem í boði sé. „Samhliða þarf að samræma afsláttarkort þannig að kort keypt á einum stað nýtist hvar sem er á svæðinu en á móti þarf að eiga sér stað uppgjör milli staða," segir starfshópurinn. Ákvörðun um slíkt kerfi útheimti þó greiningu á kostnaði og kostum og göllum. Þá þurfi að sameinast um útboð á vörukaupum. Að endingu er lagt til „að skipta höfuðborgarsvæðinu í nokkur undirsvæði með það fyrir augum að auka nýtingu með því að samræma opnunartíma og fækka opnum sundlaugum á „rauðum dögum" þegar kostnaður við mönnun er mestur". Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt umsögn íþrótta- og tómstundaráðs, sem gerir ekki „efnislegar athugasemdir" við tillögur starfshópsins. Ómar Einarsson, framkvæmdastjóri ÍTR og formaður hins sameiginlega starfshóps sveitarfélaganna, segir það þó ekki fela í sér að ákvarðanir hafi verið teknar um tilteknar breytingar. Aðgangseyrir fyrir fullorðna á sundstöðum í Reykjavík hækkaði 1. janúar á þessu ári úr 360 krónum í 450. Fyrir tæpum sjö árum, í árslok 2004, var gjaldið 230 krónur. Hækkunin síðan þá er 96 prósent. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 62 prósent.- gar
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira