Fíkniefnasendingin tekin í Straumsvík 1. nóvember 2011 08:00 Stóra fíkniefnasendingin sem er nú til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tekin um borð í hollensku gámaskipi í Straumsvík.
Hið mikla magn fíkniefna sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á fyrr í þessum mánuði var tekið í Straumsvík. Það hafði komið hingað til lands um borð í gámaskipinu Franciscu frá hollensku skipafélagi og búið um það í nokkrum pakkningum. Skipið var að koma frá Rotterdam í Hollandi. Það var hinn 10. október síðastliðinn sem lögreglan lagði hald á sendinguna. Um var að ræða fíkniefni í kílóavís. Mikið magn af e-töflum var í pakkanum, en einnig kókaín, amfetamín og sterar. Pakkann fundu lögregla og tollgæsla í gámi í skipinu. Útilokað er að segja með vissu til um umfang smyglsins á þessu stigi málsins, þar sem efnin eru nú til greiningar hjá Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Niðurstöður greiningarinnar sýna hversu mikill styrkleiki efnanna er og hvert magn þess hefði orðið, komið í sölu á götunni. Tveir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í þessu umfangsmesta smyglmáli sem komið hefur upp á árinu. Eftir því sem næst verður komist var fíkniefnapakkinn sendur að utan á lítið fyrirtæki hér. Starfsmaður þess, karlmaður á sextugsaldri, er í haldi lögreglu vegna málsins, en hann var handtekinn 10. október og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 8. nóvember. Sá maður hefur ekki komið við sögu hjá lögreglu áður. Karlmaður á fimmtugsaldri kom síðan hingað til lands með flugi um helgina og var handtekinn við komuna til landsins. Hann var í kjölfarið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 11. nóvember. Síðarnefndi maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu, meðal annars vegna fíkniefnamála, og tvisvar hlotið dóma í héraðsdómi. Rannsókn lögreglu er afar umfangsmikil og mikil vinna að baki, sem hefur staðið yfir um nokkurra vikna skeið. Lögregla hefur unnið þetta verkefni í samvinnu við tollgæsluna. jss@frettabladid.is
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira