Mál fyrir íslenska dómstóla þrátt fyrir erlent lögheimili 24. október 2011 04:00 Lagasetningin var sett í kjölfar ábenendingar frá slitastjórn Landsbankans. Máli hennar á hendur spænskum banka hafði verið vísað frá vegna þess að bankinn átti ekki varnarþing á Íslandi.
Slitastjórnir föllnu bankanna geta nú höfðað riftunarmál gegn einstaklingum eða fyrirtækjum hérlendis þrátt fyrir að viðkomandi eigi lögheimi, og þar af leiðandi varnarþing, í öðru landi. Lög þess efnis voru samþykkt á Alþingi á fimmtudag. Samhliða var frestur slitastjórnanna til að höfða riftunarmál lengdur úr 24 mánuðum í 30 mánuði. Fjölmargir stjórnendur og stjórnarmenn föllnu bankanna fluttu lögheimili sín til útlanda eftir bankahrun og eiga þar með varnarþing ytra. Heimildir Fréttablaðsins herma að mörgum þeirra hafi verið ráðlögð þau vistaskipti einmitt til að forðast að hægt væri að stefna þeim til riftunar eða setja þá í þrot fyrir íslenskum dómstólum, sem lagabreytingin heimilar nú. Slitastjórnir geta nú einnig stefnt erlendum viðskiptavinum bankanna sem talið er að hafi tekið þátt í riftanlegum gerningum. Um mikla hagsmuni er að ræða fyrir þrotabú bankanna. Frumvarpið var lagt fram í kjölfar ábendingar frá slitastjórn Landsbankans vegna dóms sem féll gegn henni í Hæstarétti í júlí síðastliðnum. Málið snerist um að spænskur banki, Banco del Gottardo S.A., hafði keypt skuldabréf útgefið af Landsbankanum í byrjun árs 2007 á eina milljón evra, um 160 milljónir króna á núvirði. Bréfið var á gjalddaga 29. desember 2008. Hinn 3. október, fjórum dögum áður en Landsbankinn var tekinn yfir af Fjármálaeftirlitinu (FME), keypti bankinn hins vegar skuldabréfið til baka á nánast sömu upphæð. Þessum gerningum vildi slitastjórn Landsbankans rifta vegna þess að bréfið var keypt þegar ljóst þótti að Landsbankinn stefndi í þrot þrátt fyrir að það væri ekki komið á gjalddaga. Nýr eigandi spænska bankans hafnaði því og krafðist frávísunar þar sem hann ætti ekki varnarþing á Íslandi. Íslenskir dómstólar voru sammála þeirri túlkun. - þsj
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Fleiri fréttir Árásarmaður elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Sjá meira