Innlent

Jákvæður andi í viðræðum

Tómas H. Heiðar
Tómas H. Heiðar
Samningafundi um makrílveiðar, sem hófst á miðvikudag, lauk í London í gær. Tómas H. Heiðar, aðalsamningamaður Íslands, segir að fundurinn hafi verið jákvæður og verður viðræðunum haldið áfram í næstu viku.

Fulltrúar strandríkjanna fjögurra, Íslands, ESB, Noregs og Færeyja, auk áheyrnaraðilans Rússlands sátu fundinn. Tómas segir að ýmsar leiðir til stjórnunar makrílveiðanna hafi verið ræddar, þar á meðal skipting aflahlutdeildar milli aðila.

- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×