Rannsóknarnefnd átelur siðanefnd HÍ 21. október 2011 05:00 Málið olli miklum titringi innan skólans, sérstaklega á seinni stigum þess. Fréttablaðið/stefán
Þriggja manna rannsóknarnefnd hefur komist að því að verulegir annmarkar hafi verið á starfi siðanefndar Háskóla Íslands þegar hún hafði til meðferðar kæru Vantrúar á hendur guðfræðikennara við skólann. Rannsóknarnefndin var skipuð í vor eftir að málið hafði velkst í stjórnsýslu háskólans í rúmt ár og valdið miklum titringi. Í hana völdust Elín Díanna Gunnarsdóttir, sálfræðidósent við Háskólann á Akureyri, Sigurður Þórðarson, fyrrverandi ríkisendurskoðandi, og Þórhallur Vilhjálmsson, aðallögfræðingur Alþingis. Forsaga málsins er sú að að Vantrú kvartaði til siðanefndar yfir námsefni guðfræðingsins Bjarna Randvers Sigurvinssonar. Samtökin töldu að í námsefninu væri ómaklega vegið að þeim. Bjarni Randver var hins vegar afskaplega ósáttur við vinnubrögð nefndarinnar og sakaði formann hennar um að eiga í nánum samskiptum við fulltrúa Vantrúar um gang mála á meðan Bjarna hefði ekki verið haldið upplýstum um neitt. Málið vatt í kjölfarið upp á sig, skipt var um formann í siðanefndinni, Bjarni Randver fékk lögfræðinginn Ragnar Aðalsteinsson til að annast málið fyrir sig og að lokum féll Vantrú frá kærunni vegna þess að ófriðurinn hefði hvort eð er eyðilagt málið. Rannsóknarnefndin gerir í skýrslu sinni margháttaðar athugasemdir við störf siðanefndarinnar á meðan á öllu þessu stóð. Í fyrsta lagi sé ekki að sjá að siðnefndin hafi í upphafi lagt mat á hvort málatilbúnaður Vantrúar snerti yfir höfuð siðareglur Háskóla Íslands. Í öðru lagi eru gerðar alvarlegar athugasemdir við það verklag siðanefndarinnar að eiga í samskiptum við málsaðila utan formlegra funda nefndarinnar. Slíkt formleysi dragi úr gagnsæi og sé til þess fallið að veikja traust til nefndarinnar. Þá sé sú ákvörðun siðanefndarinnar að ljúka málinu gegn Bjarna Randver með sátt við guðfræðideild án aðkomu Bjarna meginorsök þess að málið hafi þróast með hinum óheppilega hætti. Nefndin telur óviðunandi fyrir Háskóla Íslands og málsaðila að ekki hafi tekist að ljúka því efnislega. Þá segir enn fremur í niðurstöðu nefndarinnar að það geti ekki talist heppileg ráðstöfun að lögfræðingur háskólans sé látinn starfa fyrir siðanefndina samhliða öðrum störfum sínum fyrir skólann. „Með því er hætta á að sjálfstæði hinnar miðstýrðu stjórnsýslu Háskólans í ásýnd og í reynd sé ekki tryggð í málum sem þessum.“ stigur@frettabladid.is
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Fleiri fréttir Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Sjá meira