Biskup lýsti djúpri sorg vegna mistaka 20. október 2011 04:00 Karl Sigurbjörnsson biskup mun hitta dr. Marie Fortune og fagráð þjóðkirkjunnar á formlegum fundi í dag. fréttablaðið/gva
Um 150 manns tóku þátt í námskeiði á vegum þjóðkirkjunnar í Neskirkju í gær. Dr. Marie M. Fortune fræddi viðstadda um kynferðislegt ofbeldi í samhengi kirkju og trúfélaga og rétt viðbrögð við því. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hélt erindi og fór með bæn í byrjun námskeiðsins, þar sem hann lýsti djúpri sorg vegna mistaka sem voru gerð innan kirkjunnar við meðferð mála tengdum Ólafi Skúlasyni og sagðist biðja þess að allir lærðu af þeim. Þá sagði Karl að þjóðkirkjan væri í lærdómsferli sem miðaði að því að setja skýrari reglur um meðferð kynferðisbrota, efla fræðslu og skapa meðvitund um afleiðingar þess og forvarnir gegn því. Árni Svanur Daníelsson, upplýsingafulltrúi Biskupsstofu, segir mikla ánægju ríkja innan kirkjunnar með að dr. Fortune sé komin hingað til lands að miðla reynslu sinni. „Biskup fagnar þessari heimsókn og tekur þetta mjög alvarlega,“ segir Árni Svanur. „Hann mun hitta Fortune tvisvar í þessari viku og fara yfir málin, eins og hann sagði í morgun [í gær]. Hann er mjög þakklátur fyrir hennar framlag til vinnu þjóðkirkjunnar í þessum málum.“ Karl mun hitta Fortune í dag ásamt fagráði þjóðkirkjunnar um kynferðisbrot. Guðrún Ebba Ólafsdóttir var meðal gesta námskeiðsins og stjórnandi þess var sr. Gunnar Rúnar Matthíasson, formaður fagráðs þjóðkirkjunnar. - sv
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Sjá meira