Tveir kaflar samningsins líklega kláraðir á morgun 18. október 2011 04:00 Stefán Haukur Jóhannesson segir fleiri kafla verða opnaða í desember. Fréttablaðið/anton
Búist er við að tveimur köflum í aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið verði lokað strax eftir að þeir verða opnaðir á ríkjaráðstefnu sambandsins á miðvikudag. Þetta segir Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands. Um er að ræða kafla númer tvö, sem fjallar um frjálsa för fólks milli landa, og kafla númer sjö um hugverkarétt. „Þetta eru kaflar sem falla undir EES þannig að þetta er hluti af okkar innanlandslöggjöf og því lítið um að semja,“ útskýrir Stefán Haukur. Hann segir að á næstu ríkjaráðstefnu í desember verði fleiri kaflar opnaðir. „Það verða væntanlega fleiri en þessir tveir sem við erum að opna núna en ég vil fara varlega í að tjá mig um fjöldann á meðan hann er ekki endanlega ákveðinn,“ segir Stefán. Af köflunum 33 sem um er að tefla þykir ljóst að þeir sem snúast um sjávarútveg og landbúnað verði þyngstir. Hvenær má búast við að þeir verði opnaðir? „Á þessu stigi vitum við það ekki,“ segir Stefán Haukur. „Við sjáum fram á að sjávarútvegskaflinn tefjist, ekki síst vegna þess að Evrópusambandið er sjálft að endurskoða sína sjávarútvegsstefnu og er að því er virðist ekki í stakk búið til að opna kaflann alveg í næstu framtíð. Hvað landbúnaðarkaflann varðar þá fengum við svokallað opnunarviðmið og við munum ekki opna þann kafla fyrr en við höfum getað mætt því. Það er í skoðun þessa dagana hvernig við ætlum að nálgast það,“ segir Stefán Haukur. Þó sé ljóst að þessir tveir kaflar verði ekki opnaðir fyrir áramót. - sh
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Sjá meira