Dælingin gæti flýtt fyrir stærri skjálftum 17. október 2011 07:00 Niðurdæling vatns er skilyrt í starfsleyfi Hellisheiðarvirkjunar og er ætlað vernda grunnvatn og yfirborðsvatn og viðhalda vatnsþrýstingi í jarðhitakerfunum.
Að sögn Jónasar Ketilssonar, jarðhitasérfræðings hjá Orkustofnun, eru allar líkur á því að það dragi úr smáskjálftavirkni á Hengilsvæðinu eftir því sem niðurdæling Orkuveitunnar á vatni stendur lengur. Í gær höfðu mælst um 1.900 smáskjálftar á Hengilsvæðinu frá því hrina hófst 8. september í kjölfar þess að niðurdæling á vatni frá Hellisheiðarvirkjun hófst. Í minnisblaði Orkustofnunar segir að vegna smáskjálftanna hafi þrýstingur hækkað í mæliholum. Hann fari enn aðeins hækkandi en muni ná jafnvægi með tímanum og smáskjálftavirknin sem tengist niðurdælingunni þá hætta að mestu. „Spenna af völdum jarðskorpuhreyfinga mun þó halda áfram að byggjast upp og losna úr læðingi með jarðskjálftum af og til. Þeir jarðskjálftar munu hugsanlega verða fleiri og minni en hefði orðið án niðurdælingar,“ segir Orkustofnun, sem kveður mestu skjálfta á Hengilsvæðinu ekki geta orðið meiri en um 6 á Richter kvarða. „Niðurstaða Orkustofnunar er að sérfræðingar á þessu sviði geta sagt með nokkru öryggi að niðurdæling auki ekki líkur á því að stærri jarðskjálftar en þeir sem verða án niðurdælingar geti myndast á svæðinu. Hins vegar gætu staðbundnar tilfærslur á spennum haft áhrif í þá átt að flýta stærri skjálftum sem eru í aðsigi.“ Á laugardag fundu Hvergerðingar vel fyrir skjálftum upp á 3,8 og 3,7 stig. Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri sagði við Vísi að ólíðandi væri að búa við manngerða jarðskjálfta. Fulltrúar Orkustofnunar og Orkuveitunnar bjóða Hvergerðingum fund um málið á Hótel Örk í kvöld. - gar
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira