Tæknifrjóvganir ekki lengur niðurgreiddar 5. október 2011 08:45 Þar til ný reglugerð kemur frá velferðarráðuneytinu þurfa allir að borga 376 þúsund til 449 þúsund krónur fyrir aðgerðir.nordicphotos/afp
Samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og læknastofunnar ART Medica um niðurgreiðslur á tæknifrjóvgunaraðgerðum rann út um síðustu mánaðamót. Kostnaður þeirra sem hefja meðferð nú er því mun meiri en þeirra sem hófu meðferð í september. Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga, segir að ljóst hafi verið í byrjun september að of mikið bæri í milli til að nýr samningur yrði gerður. Samkvæmt samningnum sem nú er runninn út fór þátttökuhlutfall Sjúkratrygginga í tæknifrjóvgunum eftir því hvort um fyrstu meðferð var að ræða, aðra til fjórðu meðferð eða meðferðir eftir það. Mest var niðurgreitt fyrir fyrstu meðferð. Þá var niðurgreiðslan minni hjá fólki sem á barn fyrir. Nú borga allir jafn mikið fyrir meðferðina, 376.055 krónur fyrir glasafrjóvgun og 449.060 krónur fyrir smásjárfrjóvgun. Að sögn Steingríms Ara er búist við því að ný reglugerð um niðurgreiðslur líti dagsins ljós í þessum mánuði. Velferðarráðuneytið setur reglugerðina, sem nauðsynleg er þegar endurgreiða á fyrir þjónustu sem veitt er án samnings við Sjúkratryggingar. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir því að lækniskostnaður hjá Sjúkratryggingum verði lækkaður með því að þrengja skilyrði fyrir þátttöku trygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir. „Hvenær það tekur gildi og með hvaða hætti er á borði ráðuneytisins," segir Steingrímur Ari. „Að lækka lækniskostnað með því að þrengja skilyrði fyrir þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvgun er áfall fyrir þá sem eru að reyna að eignast barn með hjálp tækninnar," segir í fréttatilkynningu frá stjórn Tilveru, samtaka um ófrjósemi. Nú sjái fjölmörg pör og einhleypar konur fram á að geta ekki nýtt sér þessi meðferðarúrræði vegna aukins kostnaðar. Stjórn samtakanna hefur óskað eftir fundi með Guðbjarti Hannessyni velferðarráðherra vegna málsins. Samtökin segjast ekki munu sætta sig við niðurskurð. „Greiða þarf fyrir um samninga milli SÍ og ART Medica, tryggja að þær hækkanir sem þegar hafa orðið falli ekki á sjúklingana og að ekki komi til neinna skerðinga." thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira