Spurning hvort áhuginn á löggulífi sé í genunum 5. október 2011 22:00 Hlynur Steinn Þorvaldsson, Þorvaldur Sigmarsson og Hlynur Snorrason með Baltasar Goða Hafberg á handleggnum. Fréttablaðið/Vilhelm
Við erum allir starfandi lögreglumenn, nema sá litli,“ segir Hlynur Steinn Þorvaldsson og á þar við föður sinn Þorvald Sigmarsson, tengdaföður sinn Hlyn Snorrason og soninn Baltasar Goða Hafberg. „Við pabbi erum í útkallsdeildinni og óeirðadeildinni á höfuðborgarsvæðinu en tengdapabbi sér um rannsókn allra mála á Vestfjarðakjálkanum.“ Allir eru þeir löggæslumenn mikið á ferðinni í sínu starfi, að sögn Hlyns Steins. Tengdafaðir hans ferðast um sitt umdæmi og suður til Reykjavíkur og þeir feðgar þjóta af stað þegar eitthvað alvarlegt hendir á höfuðborgarsvæðinu, ýmist með blikkljósin á eða ekki. Þeir mega reyndar ekki vera saman á bíl, þótt séu þeir að vinna á sama tíma. Hlynur Steinn byrjaði í löggunni árið 2004, faðir hans 1981, sama ár og sonur hans fæddist, og tengdafaðirinn 1983. „Það er hellings reynsla sem býr í þessari fjölskyldu,“ segir Hlynur Steinn og bætir við hlæjandi að konan hans hafi verið í lögreglunni í tvö ár en fundið að það væri betra líf annars staðar. En er verið að þjálfa þann stutta upp í löggustarfið líka? „Ég segi það nú ekki en það er spurning hvort áhuginn sé í genunum. Það er að minnsta kosti ótrúlega mikið um feðga og frændur í löggunni,“ svarar hann. Hlynur Steinn segir starfið viðburðaríkt, sem geti verið bæði kostur og galli, en telur þá félaga ekki vera spennufíkla. „Ég held þetta sé frekar einhver hugsjón. Spennufíklar detta mjög fljótlega út,“ segir hann og er fljótur til svars þegar hann er spurður hvað sé skemmtilegast við vinnuna. „Þegar maður hjálpar einhverjum og starfið skiptir einhverjum sköpum. Það er alltaf ljúft.“ gun@frettabladid.is
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira