Stórborgin stundum ógnandi 19. maí 2011 14:00 Fyrirsæturnar Kolfinna Kristófersdóttir og Elmar Johnson.
Íslenskar fyrirsætur eru á faraldsfæti um þessar mundir og hefur einni þeirra, Kolfinnu Kristófersdóttur, tekist að fá verkefni strax viku eftir að hún flutti til London. „Ég kom hingað á mánudaginn og líst vel á London enn sem komið er," segir Kolfinna Kristófersdóttir fyrirsæta. Þegar Fréttablaðið náði af henni tali sat hún í fyrstu myndatöku sinni í London, myndaþætti fyrir breska tískutímaritið As you are, sem þykir góður árangur enda voru þá ekki nema fimm dagar liðnir frá því að Kolfinna kvaddi fjölskyldu sína á Íslandi og elti fyrirsætudrauminn til Bretlands. Kolfinna skrifaði nýverið undir samning hjá einni stærstu umboðsskrifstofu Bretlands, Next. „Ég bý í mjög fínni íbúð á vegum skrifstofunnar með tveimur öðrum stelpu og Brynju Jónbjarnardóttur, annarri íslenskri fyrirsætu. Það er frábært að hafa annan Íslending með sér hérna," segir Kolfinna, sem er 18 ára gömul og viðurkennir að stórborgin geti stundum virkað ógnandi á sig. „Hér eru allir alltaf að flýta sér og ég þarf að hafa mig alla við að vera ekki fyrir fólki úti á götu en Bretar eru líka mjög kurteisir," segir Kolfinna. Foreldrar hennar eru í daglegu sambandi við hana og sakna hennar mjög mikið. „Þau eru mjög stolt af mér en auðvitað líka pínu stressuð. Þau vita samt að ég stend föst á mínu og er tilbúin til að standa á eigin fótum," segir Kolfinna. Kolfinna er á vegum Eskimo-skrifstofunnar hérna heima og segir eigandinn Andrea Brabin að minnst fimm einstaklingar á vegum skrifstofunnar fari utan í fyrirsætustörf í sumar. „Við erum mjög ánægð að sóst sé eftir fimm einstaklingum frá Íslandi út og það liggur mikil vinna að baki hverri för," segir Andrea, en auk Kolfinnu og Brynju fer Helgi Ómarsson einnig til London auk þess sem Elmar Johnson og Ford-stelpan Kolbrún Ýr Sturludóttir halda til New York.- áp
Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira