Kvótafrumvarpið lagt fram 29. apríl 2011 06:30 Kvótafrumvarpið verður senn lagt fram í ríkisstjórn.
Frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða verður lagt fyrir ríkisstjórn í dag eða strax eftir helgi í síðasta lagi. Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi fá ekki að sjá frumvarpið fyrr en það hefur fengið umfjöllun í ríkisstjórn og í þingflokkum stjórnarflokkanna. Mikil vinna hefur verið lögð í að ljúka gerð frumvarpsins síðustu daga. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa embættismenn og fáeinir stjórnarliðar setið tugi funda og embættismenn lögðu lokahönd á einstakar greinar frumvarpsins í gær. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sendu ríkissáttasemjara yfirlýsingu í gærkvöldi vegna yfirstandandi kjaraviðræðna. Yfirlýsingunni fylgdi sérstök bókun um málsmeðferð vegna frumvarpsins. Samkvæmt heimildum segir í bókuninni að eftir að frumvarpið hefur fengið umfjöllun í ríkisstjórn og þingflokkum stjórnarflokkanna verði það fyrst kynnt helstu hagsmunaaðilum í sjávarútvegi á lokuðum trúnaðarfundum, áður en það verður lagt fram á þingi. Þá segir að eftir að hagfræðilegri greiningu á áhrifum fyrirhugaðra breytinga á rekstur og starfsumhverfi sjávarútvegsins er lokið muni Samtök atvinnulífsins og Alþýðusambandið tilnefna tvo fulltrúa hvort ásamt fulltrúum stjórnarflokkanna til að vinna að frekari sátt um málið. Þeirri yfirferð á að vera lokið 8. júní. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru þessar hugmyndir um málsmeðferð metnar af forystumönnum í sjávarútvegi sem hrein sýndarmennska af hálfu ríkisstjórnarinnar og í sjálfu sér einskis virði í samhengi við gerð kjarasamninga. Fáir þekkja efni frumvarpsins í þaula. Kerfinu verður þó örugglega skipt upp; í nýtingasamninga við útgerðina og potta til samfélagslegra verkefna. Samkvæmt heimildum er stefnt að því að pottarnir verði 15 til 20 prósent aflaheimilda að fimmtán árum liðnum og nýtingartími útgerðarinnar fimmtán til tuttugu ár. Útgerðarmenn segja að lágmarks nýtingartími í samningum verði að vera 35 ár. Framsal aflaheimilda tekur þá nær örugglega breytingum, enda sagði í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar til SA nýlega að forgangur núverandi kvótahafa yrði brotinn upp og komið í veg fyrir fénýtingu á sameign þjóðarinnar með leigu og sölu á aflaheimildum. Heimildir segja að ágreiningur á stjórnarheimilinu snúist um hvort útgerðarmenn eigi að ganga að frekari nýtingarsamningum vísum eftir tuttugu ár. Eins hvaða forsendur verða hafðar til hliðsjónar við að reikna út veiðigjald og hvernig skattheimta af útgerðinni verður hugsuð. - shá
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira