Eurovision-ævintýrið kostar 30 milljónir 28. apríl 2011 09:00 Vinir Sjonna gista á Radisson-hóteli rétt fyrir utan Düsseldorf. Fréttablaðið/Daníel „
Ferðakostnaðurinn hækkar töluvert á milli ára og stærstur hluti af því er gríðarlega hátt verð á hótelum í Düsseldorf,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV. Kostnaðurinn við Eurovision-þátttöku Íslands hækkar um fimm milljónir frá því sem var fyrir ári þegar Hera Björk og Örlygur Smári kepptu fyrir Íslands hönd. Hann er núna rétt rúmar þrjátíu milljónir króna en hefur undanfarin tvö ár verið 25 milljónir. „Auðvitað erum við spæld og það eru ábyggilega fleiri lönd í sömu stöðu og við. En svona er bara lífið og svona er þessi „bisness“. Svo má ekki gleyma því að hópurinn í ár er óvenju stór.“ Sigrún segir mistökin hafa verið þau að Þjóðverjar hafi tilkynnt að keppnin yrði haldin í Düsseldorf áður en rætt hefði verið við ferðaþjónustuaðila í borginni. Þeir hefðu í kjölfar ákvörðunarinnar hækkað verðið á gistingu töluvert enda vitað að ferðamannafjöldinn myndi margfaldast með heimsókn Eurovision-fyrirbærisins. „Hóteleigendur eru að maka krókinn á þessu og ég veit ekkert hvort þetta er endilega gott fyrir ferðaþjónustubransann þeirra.“ Hótelkostnaðurinn er rúmar níu milljónir og samanlagður ferðakostnaður er fjórtán milljónir en inni í þeirri tölu eru dagpeningar og flug. Sigrún segir það eilitla sárabót að verð á fargjöldum hafi reynst hagstæðara en þau gerðu ráð fyrir. Dagskrárstjórinn ætlar hins vegar að nýta mannskapinn sinn úti í Þýskalandi vel og verður með sérstakan Eurovision-þátt sunnudaginn 8. maí þar sem rifjuð verður upp leið Vina Sjonna til Düsseldorf.- fgg
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira