Braust inn, stal skartgripum og kveikti í rúmi 28. apríl 2011 04:00 Húsið í Reykjanesbæ sem maðurinn er ákærður fyrir að hafa kveikt í.
Ríkissaksóknari hefur ákært tæplega þrítugan karlmann fyrir þjófnað, húsbrot, brennu og eignaspjöll. Manninum er gefið að sök að hafa brotist inn á neðri hæð íbúðarhúss í Reykjanesbæ í febrúar 2007. Hann komst inn með því að spenna upp glugga. Úr íbúðinni stal hann skartgripum að andvirði ríflega hundrað þúsund króna, að því er segir í ákæru. Þá skemmdi hann bæði innanstokksmuni og gólfefni í svefnherbergi íbúðarinnar. Einnig er manninum gefið að sök að hafa síðan farið í heimildarleysi í íbúð á efri hæð hússins. Þar braut hann spegil á baðherbergi og kveikti svo í rúmi í svefnherbergi. Með þessu olli hann eldsvoða sem hafði í för með sér almannahættu, því eldurinn barst í aðliggjandi herbergi íbúðarinnar og fram á stigagang. Slökkviliðið náði fljótlega að ráða niðurlögum eldsins, en talsverðar skemmdir urðu á húsinu. Maðurinn er ennfremur ákærður fyrir að stela lyklum og peningum úr bíl og taka svo annan bíl í nágrenninu í heimildarleysi og aka um á honum þar til lögreglan stöðvaði hann. Maðurinn er krafinn um rúmar 15,5 milljónir króna af tveimur tryggingafélögum.-j ss
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Sjá meira