Dýrara að reka Gæsluna á Miðnesheiði en í Reykjavík 27. apríl 2011 06:30 Dýr flutningur Heimildir blaðsins herma að skýrsla sýni aukinn kostnað af flutningu Gæslunnar til Suðurnesja. Fréttablaðið/Rósa
Hugsanlegur flutningur Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja gæti haft umtalsverðan kostnað í för með sér vegna flutningsins sjálfs og aukins rekstrarkostnaðar til lengri tíma. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er þetta meðal þess sem kemur fram í hagkvæmnisathugun sem var unnin fyrir innanríkisráðuneytið og verður kynnt á fundi ríkisstjórnar í dag. Þessi niðurstaða gæti sett flutninginn í uppnám. Athugunin hefur staðið yfir allt frá síðasta hausti, en þetta var meðal þeirra verkefna sem kynnt voru á fundi ríkisstjórnarinnar sem haldinn var í Reykjanesbæ í nóvember. Skýrslan átti að liggja fyrir snemma í febrúar og hefur meðal annars verið þrýst á um niðurstöður í ræðustól á þingi. Hagkvæmnisathugunin felur ekki í sér endanlega ákvörðun og í henni er ekki lagt mat á áhrif hugsanlegs flutnings á atvinnulíf á Suðurnesjum. Þar er einungis metinn hugsanlegur kostnaður og áhrif á starf Gæslunnar. Framhaldið er í höndum ríkisstjórnarinnar, en heimildir blaðsins herma að skiptar skoðanir séu um málið þar, sem og á þingi. Mikill pólitískur þrýstingur er á flutning, þar sem allir þingmenn Suðurkjördæmis og sveitarstjórnarfólk á svæðinu hafa skorað á stjórnvöld að ganga í málið, og í febrúar var lögð fram þingsályktunartillaga um að ráðherra hæfi undirbúning að flutningi. Tvær þingsályktunartillögur um gerð hagkvæmnismats vegna flutnings voru lagðar fram árið 2004 og 1992, en komust hvorug út úr allsherjarnefnd. Talsmenn flutnings vísa meðal annars til þess að þeir telji alla nauðsynlega aðstöðu fyrir Landhelgisgæsluna vera fyrir hendi í Reykjanesbæ. Þar sé stórt flugskýli og annað húsnæði á Ásbrú, auk þess sem hafnaraðstaða sé til reiðu og styttra sé út á haf en frá núverandi aðstöðu í Reykjavíkurhöfn. Hins vegar er einnig sterk krafa um að ávinningur verði af aðgerðunum, ef þær verði að veruleika. Það má ráða af ræðum á þingi þar sem þingmenn hafa einnig lagt áherslu á að staðsetning Gæslunnar sé ekki stærsta vandamál stofnunarinnar. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra tók í svipaðan streng í svari sínu við fyrirspurn á Alþingi í janúar síðastliðnum þar sem hann sagði: „Af minni hálfu er meginforsenda þess að gera tillögu um þennan flutning starfsemi Landhelgisgæslunnar að óyggjandi sé að ekki sé óhagkvæmara að reka stofnunina þar en hér í Reykjavík.“- þj
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira