Kæra bæinn fyrir að hygla heimamönnum 26. apríl 2011 06:00 Útboð um Naustaskóla á Akureyri voru opnuð 20. apríl en fyrirtækið sem bauð best uppfyllir ekki skilyrði og fær því ekki verkið. „
Ég vísa ásökunum um fyrirgreiðslupólitík og spillingu á bug,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, um ásakanir Jóns Ármanns Steinssonar forsvarsmanns byggingarverktakans Hamarsfells. Hamarsfell ehf. og Adakris UAB undirbúa skaðabótamál á hendur Akureyrarbæ þar sem bærinn hafnaði tilboði verktakanna í byggingu Naustaskóla, nýs grunnskóla á Akureyri. Tilboð SS Byggis varð ofan á. Þegar tilboðin voru opnuð áttu Hamarsfell og Adakris lægsta tilboðið í verkið. SS Byggir ehf., félag heimamanna, átti þá 4. og 5. lægsta tilboðið. Vegna samlagningarvillu í útreikningi á tilboði SS Byggis upp á 83,8 milljónir króna var það leiðrétt og varð þá næstlægsta tilboðið í verkið. „Villurnar eru eitthvert aukaatriði í þessu máli. Vafamálið snýr að Hamarsfelli. Að mati Fasteigna Akureyrar uppfyllir fyrirtækið ekki skilyrði bæjarfélagsins,“ segir Eiríkur Björn. Hamarsfell bað um skýringar á samlagningarvillunni en Akureyrarbær ber fyrir sig trúnaði. „Siðblindan í þessu er sú að bærinn getur leiðrétt það sem honum sýnist og þarf aldrei að sýna fram á neitt,“ segir Jón Ármann hjá Hamarsfelli. „Þetta tilboð frá SS Byggi er steypa frá upphafi til enda.“ Jón Ármann bendir á að við skoðun á tilboði SS Byggis áætlar bæjarfélagið að endurgreiða verktakanum 65 milljónir króna. Vegur vinnuþátturinn af heildarupphæðinni 70 prósent og efniskostnaður 30 prósent í tilboði SS Byggis. Hamarsfell bendir á að eðlileg hlutföll í þessu samhengi séu 40 prósent í vinnukostnað og 60 prósent í efniskostnað. „Þetta er mjög ótrúverðug upphæð,“ segir Jón Ármann og segir að Hamarsfell hafi bent á ótrúverðugleika upphæðarinnar. „Við fengum lögbann á áframhaldandi samninga bæjarins við SS Byggi en tryggingargjaldið til að viðhalda því er 66 milljónir króna.“ Hamarsfell ætlar ekki að borga trygginguna. Það sé annaðhvort að kæra „eða bara lúffa gegn því sem við teljum venslaspillingu á versta stigi,“ segir Jón Ármann. „Akureyri og SS Byggir ganga því vafalaust frá samningi eftir klukkan tvö á morgun [í dag].“ Hamarsfell ætlar að kæra málið og verður það tekið fyrir í útboðsnefnd kærumála hjá innanríkisráðuneytinu. birgirh@frettabladid.is
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Sagði fósturmissinn með vilja gerðan og hótaði að taka frá henni börnin Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Sjá meira