Jón Jónsson reynir að vera einlægur á fyrstu plötunni 14. apríl 2011 11:00 Jón Ragnar ásamt sinni hægri hönd, hljómborðsleikaranum Kristjáni Sturlu, sem tekur upp tónlist hljómsveitarinnar Jón Jónsson. fréttablaðið/anton
Jón Jónsson hefur vakið talsverða athygli undanfarið fyrir sumarlega popptóna sem hafa hljómað á öldum ljósvakans. Nú er plata á leiðinni frá Jóni Ragnari og félögum. „Við tókum lögin upp í janúar og erum búnir að vera að fínpússa síðan. Ferlið er komið mjög langt,“ segir tónlistarmaðurinn Jón Ragnar Jónsson. Jón fer fyrir hljómsveitinni Jón Jónsson, sem er nú á lokasprettinum með fyrstu breiðskífuna. Platan er væntanleg í lok maí og útgáfusamningur við afþreyingarfyrirtækið Senu liggur fyrir. „Ég á bara eftir að kvitta undir,“ segir Jón. Elsta lagið á plötunni var samið árið 2005, en það yngsta í nóvember í fyrra. „Þannig að ég er búinn að fá góðan tíma til að þróa tónlistina í rólegheitunum með minni hægri hönd, Kristjáni Sturlu. Hann tekur allt upp.“ Kristján þessi hefur komið víða við; leikur stundum á hljómborð með Ingó og Veðurguðunum og samdi tónlistina í gríðarvinsælli stiklu Audda í keppni sem hann og Sveppi settu upp á dögunum. Spurður hvort hann sé með sumarplötu í höndunum segir Jón Ragnar svo vera, en ítrekar þó að hann eigi eftir að koma fólki á óvart. „Það eru aðeins dýpri pælingar þarna,“ segir hann. „En ég er bara poppari. Það gæti einhver jaðargæi spurt hvort þetta sé virkilega það sem ég er að tala um að sé djúpt. En ég er rosalega ánægður með útkomuna, sérstaklega viðkvæmari lögin.“ Söngvarinn Friðrik Dór er yngri bróðir Jóns Ragnars. Hann gaf út fyrstu plötuna sína á síðasta ári og var henni vel tekið af gagnrýnendum, sem og aðdáendum, en hún seldist í rúmlega 2.000 eintökum. Jón viðurkennir að litli bróðir sé þar með búinn setja pressu á sig. „Ég sagði einhvers staðar að það neikvæðasta við hvað Friðriki gekk vel með plötuna er hvað hann setti mikla pressu á mig,“ segir Jón Ragnar í léttum dúr og bætir við að Friðriki hafi tekist að heilla menn eins og Arnar Eggert Thoroddsen, tónlistarskríbent Morgunblaðsins. Hann er ekki þekktur fyrir áhuga sinn á R&B-tónlist, þótt hann sé vissulega víðsýnn og fordómalaus. Jón segir að það yrði ánægjulegt ef hann gæti gert jafn vel og bróðir sinn. „Ég reyni að vera einlægur í því sem ég er að gera,“ segir hann. „Ég geri það sem mér finnst skemmtilegt og er ekki að reyna að þvinga því upp á einn eða neinn. En ég vona að sem flestir vilji koma og vera með. Það er pælingin.“ atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Sjá meira