Jóhannes orðinn hrikalegur 12. apríl 2011 11:00 Jóhannes Haukur og Egill Einarsson. Fréttablaðið/Valli „
Ég verð Jóhannesi innan handar ef það vakna spurningar um líkamsrækt. Og ef mig vantar upplýsingar um leik og leikræna tilburði þá get ég alltaf leitað til Jóhannesar. Það verður gott samstarf okkar á milli á tökustað," segir Egill „Gillz" Einarsson. Tökur á kvikmyndinni Svartur á leik hefjast seinna í þessum mánuði en myndin er byggð á samnefndri bók Stefáns Mána um undirheima Reykjavíkur. Egill Gillzenegger leikur stórt hlutverk í myndinni en þetta verður frumraun hans á hvíta tjaldinu. Þetta er hins vegar ekki í fyrsta sinn sem leiðir Egils og Jóhannesar liggja saman því sá síðarnefndi lék svonefndan „rasshaus" í sjónvarpsþáttunum Mannasiðir Gillz. „Jóhannes hefur tekið sig mikið á síðan þær tökur fóru fram, hann var alveg hnöttóttur; með kringlóttan haus og svakalega bumbu," segir Egill en eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu þá hefur Jóhannes verið fastagestur í líkamsræktarstöðvum borgarinnar til að undirbúa sig líkamlega undir hlutverk handrukkara í myndinni. Og sú vinna hefur sannarlega skilað sér.Jóhannes leikur aðalhandrukkarann í Svartur á leik en Egill er dópsali og varmenni. Ekki er langt síðan Jóhannes Haukur lék "rasshaus“ í sjónvarpsþáttunum Mannasiðir sem slógu í gegn á Stöð 2.Egill segist ekkert hafa þurft á kvikmyndahlutverkinu að halda, hann sé að skrifa bók, gera aðra seríu um Ameríska drauminn og Mannasiðina auk þess að vera uppbókaður sem einkaþjálfari. Hann hafi hins vegar viljað ögra sjálfum sér. „Ég pældi aðeins í þessu, þessi karakter sem ég leik er náttúrulega glæpamaður, hann gerir ljóta hluti í myndinni og það gæti náttúrulega haft áhrif á mína ímynd. En svo ákvað ég bara að láta slag standa, myndin verður væntanlega líka bönnuð börnum." - fgg
Mest lesið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Lífið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Lífið Wire-stjarna látin langt fyrir aldur fram Bíó og sjónvarp Einmana um jólin og sex góð ráð Áskorun Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Bíó og sjónvarp Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Gagnrýni Fleiri fréttir Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni „Við erum öll dauð hvort sem er“ Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Sjá meira