Minnka á magndrykkju 12. apríl 2011 08:00 steingrímur j. sigfússon fjármálaráðherra.
Í nýju frumvarpi fjármálaráðherra til breytinga á lögum um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins er lagt til að stofnunin verði án stjórnar og heyri beint undir fjármálaráðherra. Meginefni frumvarpsins snýr að lögfestingu samfélagslegrar ábyrgðar ÁTVR. Slík stefna er þegar í gildi en án lagaskyldu. Segir í greinargerð frumvarpsins að ÁTVR þurfi að fylgjast vel með rannsóknum á sviði áfengismála og miðla þeirri þekkingu til viðskiptavina. Þetta eigi sérstaklega við um tengsl áfengis og heilsu en mikilvægt sé að hvetja viðskiptavini til heilbrigðrar og ábyrgrar áfengisneyslu. Eitt mikilvægasta verkefni ÁTVR á sviði samfélagslegrar ábyrgðar sé að standa vörð um unga fólkið og vernda það gagnvart áfengi og misnotkun þess. Breyta þurfi þeim viðhorfum í þjóðfélaginu að áfengisneysla unglinga sé í lagi. Þá segir að ÁTVR eigi að einbeita sér að því að bæta vínmenningu í landinu með því að vekja áhuga viðskiptavina á vönduðum vínum, tengja saman vín og mat og reyna þannig að draga úr magndrykkju. Í frumvarpinu er vikið að stefnu stjórnvalda í áfengismálum og hún sögð til að lágmarka skaðlega neyslu. Sérstaklega sé stefnt að því að vernda börn og unglinga gegn áfengi og markaðssetningu þess. Grunnstoðir áfengisstefnunnar séu að starfrækja einkasölu ríkisins á áfengi, háir áfengisskattar og bann við áfengisauglýsingum og markaðsstarfsemi tengdri áfengi. - bþs
Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira