Kempur frá Malí og Kúbu spila í Hörpunni 11. apríl 2011 10:00 Þeir Kasse Mady Diabaté og Bassekou Kouyate úr Afrocubism spila með félögum sínum í Hörpunni í júní. Nordicphotos/Getty
Afrocubism, stórsveit tónlistarmanna frá Kúbu og Malí leikur á tónleikum í Hörpu hinn 28. júní í sumar. Það er Þorsteinn Stephensen hjá Hr. Örlygi sem stendur að tónleikunum. Afrocubism var upprunalega hugmyndin að Buena Vista Social Club árið 1996. Þá urðu vandræði með vegabréfsáritanir til þess að tónlistarmennirnir náðu ekki saman og Kúbverjarnir fengu að eiga sviðið. Fjórtán árum síðar var ákveðið að láta gamla drauminn rætast og tónlistarmönnunum var smalað í hljóðver. Samnefnd plata Afrocubism kom út í október í fyrra og hlaut lof gagnrýnenda. Um þessar mundir er Afrocubism á tónleikaferðalagi um Evrópu og spilar meðal annars í Royal Albert Hall áður en kemur að tónleikunum í Hörpu. Fremstur í flokki Kúbverjanna er maðurinn með kúrekahattinn, Elias Ochoa, sem söng hið eftirminnilega lag Buena Vista Social Club, Chan Chan. Upprunalegu boðsgestirnir frá Malí eru hinn margverðlaunaði Bassekou Kouyate sem spilar á ngoni-lútu, og gítarleikarinn Djelimady Tounkara. Með þeim eru söngvarinn Kasse Mady Diabaté, Lassana Diabaté sem spilar á balafon, og Toumani Diabaté sem spilar á afríska strengjahljóðfærið kora. Diabaté hefur meðal annars spilað með Damon Albarn og Björk og hlaut Grammy-verðlaunin á þessu ári fyrir plötuna „Ali and Toumani" sem var síðasta samstarfsplata hans og gítarleikarans þekkta Ali Farka Touré. -hdm
Mest lesið Seiðandi víbrur sem virka í bólinu Lífið Þegar Jónas var jarðsettur hundrað árum eftir andlátið Lífið Amman helsta fyrirmynd tískudrottningar Reykjavíkur Tíska og hönnun Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig Lífið Skammar vini sína: „Hættum Happy birthday á Facebook“ Menning Ríkulegt einbýlishús knattspyrnukappa falt fyrir 315 milljónir Lífið Kemur út sem pankynhneigð Lífið „Pylsa“ sækir í sig veðrið Lífið „Við munum aldrei leyfa minningu hennar að deyja“ Lífið Opnar sig um sviplegt fráfall eiginmannsins Lífið Fleiri fréttir Seiðandi víbrur sem virka í bólinu Þegar Jónas var jarðsettur hundrað árum eftir andlátið Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig „Pylsa“ sækir í sig veðrið Ómótstæðileg ítölsk steikarloka úr smiðju Hildar Rutar Opnar sig um sviplegt fráfall eiginmannsins „Lítið ömmugull á leiðinni“ hjá Siggu Lund Ríkulegt einbýlishús knattspyrnukappa falt fyrir 315 milljónir Langömmulán hjá Eddu Björgvins Kemur út sem pankynhneigð Vín mun hýsa Eurovision á næsta ári „Við munum aldrei leyfa minningu hennar að deyja“ Einfaldar leiðir til að róa taugakerfið Nýju fötin forsetans Erla og Ólafur selja glæsilegt einbýli í Vesturbænum Bubbi segir Hróa Hattar-brag á stuldinum Dúnmjúkir pizzasnúningar Fáklædd og glæsileg við sundlaugarbakkann Flugfreyjusætið var inni á klósettinu Sunneva veltir Evu Ruzu úr sessi Elskar Kennedy þó þeir ræði lítið pólitík í matarboðum Kennir kettinum hundatrix og heklar á hann föt Martin og Anna María selja hönnunaríbúð í Garðabæ Þaggar niður í orðrómi um sambandsslit Fjörutíu ára draumur Guðmundar rættist Gamlir samherjar funduðu á fiskistað Ein glæsilegasta leikkona landsins á lausu Saga Matthildur orðin tveggja barna móðir WikiLeaks og aðför stórvelda: Uppljóstrun aldarinnar undirbúin í Reykjavík Bryndís Haralds amman og Gunni Helga afinn Sjá meira