Van Damme var útskúfaður frá Hollywood 7. apríl 2011 21:00
Belgíska bardagahetjan Jean-Claude Van Damme hefur upplýst að kvikmyndaverin í Hollywood hafi meðvitað lokað á hann vegna launakrafna hans. Van Damme varð að hætta kvikmyndaleik eftir tíunda áratuginn þar sem engin hlutverk voru í boði fyrir hann. Leikarinn hafði skýringar á reiðum höndum í breskum sjónvarpsþætti á dögunum. „Þeir úthýstu mér eftir að ég setti fram of háar launakröfur. Eftir Time Cop fékk ég tilboð um að gera þrjár kvikmyndir og átti að fá tólf milljónir dala fyrir hverja mynd. Mér fannst það skammarlegt, ég vildi tuttugu milljónir dala á hverja mynd eins og Jim Carrey fékk." Eftir það hættu kvikmyndaverin að hringja og Van Damme segist sjá eftir öllu saman. „Ég var ekki með sjálfum mér og mér urðu á mikil mistök." Van Damme var vissulega aðalmaðurinn í gerð svokallaðra b-hasarmynda á tíunda áratug síðustu aldar. Hann tjáði sig á bjagaðri ensku en sjálfur Schwarzenegger, var harkan uppmáluð og kýldi mann og annan með hnefum og hnjám. Kvikmyndirnar voru flestar keimlíkar, Van Damme einn á móti öllum, reiður talsmaður réttvísinnar. Og aðdáendur kappans verða að bíða enn um sinn eftir kvikmynd með „meistaranum" því hann neyðist til að hafna öllum kvikmyndahlutverkum um þessar mundir þar sem hann býr sig nú af kappi undir endurkoma sína í thai-boxi gegn Somluck Kamsing í nóvember.
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira