Slær í gegn í norskum kvikmyndum 7. apríl 2011 11:00 Ásta og Kaptein Sabeltann, sem er rótgróinn barnakarakter í hjörtum Norðmanna. Ásta trúir að sjónvarpsþættirnir, sem sýndir verða næsta haust á NRK, eigi eftir að verða klassík.
Ásta Hafþórsdóttir gerir það gott í norska kvikmyndaheiminum. Hún segir meiri peninga í bransanum þar en hér heima og að umhverfið þar sé fjölskylduvænna. „Það er búið að ganga mjög vel síðan ég flutti út en ég held að ég hafi verið á réttum stað á réttum tíma," segir Ásta Hafþórsdóttir leikgervahönnuður. Hún flutti til Noregs síðasta sumar þar sem hún hoppaði beint í tökur á sjónvarpsþáttum um sjóræningjann Kaptein Sabeltann fyrir NRK, en hann er rótgróinn karakter í Noregi og á meðal annars skemmtigarð tileinkaðan sér í Kristiansand. „Ég fór út árið 2009 að kanna bransann hérna, kynna mig og hitta fólk. Svo má eiginlega segja að ég hafi hitt á rétta tímasetningu því þegar ég frétti að Þóra Tómasdóttir væri byrjuð að vinna hjá framleiðslufyrirtækinu SF Norge hafði ég samband við hana til að segja frá mér. Það var einmitt verið að ráða listræna stjórnendur í verkefnið og eftir nokkur símtöl við leikstjórann var ég ráðin," segir Ásta, sem á að baki nokkurra ára starf í kvikmyndageiranum hérna heima. Hún sá meðal annars um gervi Glanna glæps í Latabæ og kvikmyndirnar Sumarlandið, Astrópíu, Brim og The Good Heart sem skilaði henni Edduverðlaununum fyrr á þessu ári.Ásta segist vera á hátindi ferilsins. Fréttablaðið/VilhelmÁsta ber starfsumhverfinu í Noregi vel söguna og segir töluverðan mun vera á milli landa í þeim efnum. „Það er greinilega til meira af peningum hér og launin miklu betri. Ég var orðin svo vön að þurfa alltaf að finna ódýrustu lausnirnar en hér þarf þess ekki. Norðmenn eru líka svo fjölskyldusinnaðir; heill vinnudagur er átta tímar í staðinn fyrir tólf eins og heima og oftast frí um helgar," segir Ásta en bætir þó við að henni þyki vænt um Ísland og stefni á að koma aftur heim. Eftir að tökum lauk á Kaptein Sabeltann hefur síminn hins vegar ekki stoppað hjá Ástu og henni verið boðin hin ýmsu verkefni. „Ég hef fengið fjöldann allan af tilboðum, allt frá fastráðningu í frægri norskri sápuóperu til kennslustarfa og kvikmynda. Ég ákvað hins vegar að taka að mér eina stærstu framleiðslu sem gerð hefur verið í Noregi en það er kvikmynd eftir Kon-Tiki ævintýrinu sem tökur hefjast á í sumar," segir Ásta. Þess ber að geta að Karl Júlíusson leikmyndahönnuður sér einmitt um leikmyndina í Kon-Tiki. Ásta er búin að koma sér vel fyrir í Ósló en hún ólst upp í Noregi. „Mér líður alveg stórkostlega vel hérna, fólkið og umhverfið er frábært. Það má eiginlega segja að ég sé á toppnum á mínum ferli í dag." alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira