Ásdís Rán selur kjóla og snyrtivörur í Búlgaríu 6. apríl 2011 13:30 Sala á förðunar- og kjólalínum Ásdísar Ránar hefjast bráðlega í stórum verslunum í Búlgaríu. Fréttablaðið/valli „
Þetta er alveg frábært. Ég bjóst ekki við að ná að negla þetta svona vel,“ segir fyrirsætan og athafnakonan Ásdís Rán Gunnarsdóttir. Ásdís hefur samið við búlgörsku verslanakeðjurnar Piccadilly og Hot Spot um sölu á Icequeen-snyrtivöru- og kjólalínum sínum. Ásdís var stödd í Búlgaríu þegar Fréttablaðið náð í hana og var að vonum kampakát með samningana. „Ég er búin að vera hérna í tvær vikur að ganga frá framleiðslu á Icequeen-kjólunum. Mér tókst í leiðinni að semja við tvær af stærstu búðunum,“ segir hún og bætir við að ferlið hafi ekki verið auðvelt. „Það tók mig marga mánuði að ná sambandi við þetta fólk. Búlgaría er svo hræðilega stór, þetta er ekkert grín. Ég bjóst ekki við að þetta myndi ganga upp, en ég er vön að reyna allt.“ Ásdís segir Piccadilly-verslanirnar vera svipaðar Hagkaupsverslunum íslensku, en snyrtivörurnar verða seldar þar. Kjólalínan verður seld í Hot Spot, sem er tískuverslanakeðja með um 60 verslanir í Búlgaríu. „Að vísu byrja vörurnar í stærstu búðunum og svo byggist þetta smám saman upp,“ segir Ásdís og bætir við að sala á kjólunum hefjist eftir rúman mánuð. Stuttu seinna hefst sala á Íslandi. „Svo er spurning hvort fólk kaupir vörurnar. Ég hef engar áhyggjur af því. Stelpur um allan heim eru eins inn við beinið – við viljum allar vera sætar og kaupa farða og fín föt.“ Og verðurðu moldrík af þessu? „Þegar ég verð búin að víkka veldið út til Rúmeníu og Tyrklands þá kaupi ég mér risahús á Íslandi,“ segir Ásdís að lokum og hlær.- afb
Mest lesið Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Lífið Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Lífið Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Bíó og sjónvarp Reykjalundur hlýtur alþjóðlega gæðavottun fyrir endurhæfingarþjónustu Lífið samstarf Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Lífið Djúsí maísstönglar frá BBQ kónginum Lífið samstarf Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Fleiri fréttir Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Sjá meira