Gerir upp mistök í einkalífinu 2. apríl 2011 15:00 Ætlar sér stóra hluti Júlí Heiðar hefur sagt skilið við fortíðina á blauta dansgólfinu og ætlar núna að gefa út lög eftir sjálfan sig. Nýtt lag með þessari átján ára gömlu poppstjörnu verður sett í spilun á mánudag.Fréttablaðið/Valli „
Athyglin var slæm á marga vegu en hún kom mér á kortið þannig að nú get ég einbeitt mér að þeirri tónlist sem mig langar til að gera,“ segir Júlí Heiðar. Spóla tilbaka, nýtt lag söngvarans, verður sett í spilun á mánudag. Lagið skartar rapparanum Óskari Axel í gestahlutverki og er um að ræða þvottekta sykursætan poppsmell. Texti lagsins er hins vegar í dramatískari kantinum, hann er uppgjör Júlí Heiðars, hinnar átján ára gömlu poppstjörnu frá Þorlákshöfn, við fortíðina. „Málið var að ég gerði alveg svakaleg mistök, ég fór á bakvið kærustuna mína. Og þegar maður gerir eitthvað sem maður sér jafnmikið eftir þá vill maður fá að spóla til baka. Lagið fjallar því ekki beint um hana, kærustuna mína, heldur um þá sem vilja fá að spóla til baka.“ Júlí bætir því við að hann og kærastan hafi gert upp sín mál, hreinsað andrúmsloftið og að þau hafi aldrei verið jafn hamingjusöm og í dag. „Hún er búin að taka mig í sátt.“ Júlí Heiðar var á allra vörum á síðasta ári þegar lagið Blautt dansgólf tröllreið útvarpsstöðvunum og unglingar kyrjuðu lagið við hvert tækifæri. Texti lagsins fór fyrir brjóstið á forráðamönnum ungra aðdáenda poppstjörnunnar og eins og Fréttablaðið greindi frá voru barnaverndaryfirvöld farin að fylgjast með því að allt færi sómasamlega fram á dansleikjum þar sem Júlí var meðal flytjenda. „Ég er búinn að þroskast mikið síðan þetta var. Það sem við gerðum þarna og mér fannst aldrei koma nægjanlega fram var að lagið átti að skapa mér nafn, þetta var grín. Ég samdi hvorki textann né lagið en núna sem ég allt sjálfur,“ segir Júlí og upplýsir að plata sé í burðarliðnum. „Við ætlum samt að gera þetta hægt og rólega og platan kemur ekki út fyrr en við erum komnir með nægilega gott efni.“ Tónlistarmaðurinn ungi hefur því jafnað sig á þeim mikla brotsjó sem yfir hann gekk og hann segist hlakka til að byrja feril sinn upp á nýtt. „Ég og Óskar Axel erum sannfærðir um að þetta verði okkar sumar. Það er kominn tími á að hvíla Friðrik Dór og Erp, nú er komið að mér og Óskari,“ segir Júlí, en þeir tveir verða í eldlínunni á Söngvakeppni framhaldsskólanna á Akureyri um næstu helgi þar sem lagið verður frumflutt.freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fleiri fréttir Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Sjá meira