Sængað hjá vinum og ofurpilla 24. mars 2011 21:00 Fjörugt Matt Damon og Bradley Cooper keppa um hylli íslenskra kvikmyndahúsagesta með kvikmyndirnar Limitless og The Adjustment Bureau.
Fjórar myndir verða frumsýndar í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina. Sérstaklega verður að minnast á bresku gamanmyndina Four Lions sem fengið hefur afbragðsgóða dóma en hún er frumsýnd í Bíó Paradís. Myndin segir frá hópi lánlausra hryðjuverkamanna sem undirbúa árás í ensku borginni Sheffield. Leikstjórinn Chris Morris vann til Bafta-verðlauna fyrir þessa frumraun sína og myndin var ein af tíu bestu myndum ársins að mati Time Magazine. Kvikmyndin Limitless með Bradley Cooper og Robert De Niro verður einnig tekin til sýningar um helgina. Hún segir frá hinum lata Eddie Morra sem varla nennir að draga andann. Hann kemst hins vegar í kynni við dularfullan mann sem gefur honum pillu en hún gerir honum kleift að sjá heiminn upp á nýtt. Myndin hefur fengið ágætis dóma og situr á toppnum í Bandaríkjunum. Kvikmyndin The Adjustment Bureau skartar Matt Damon og Emily Blunt í aðalhlutverkum en hún segir frá manni sem vill breyta lífi sínu og örlögum. Myndin er byggð á smásögu eftir Philip Dick, þann sama og skrifaði Blade Runner. Fjórða myndin er síðan No Strings Attached en hún er kannski til marks um ókosti ófrumleika. Myndin segir nefnilega frá vinum sem ákveða að sænga saman án þess að það hafi neinar afleiðingar. Sama söguþráð er hægt að finna í kvikmyndinni Friends with Benefits sem verður frumsýnd á þessu ári. No Strings skartar Ashton Kutcher og Óskarsverðlaunaleikkonunni Natalie Portman í aðalhlutverkum.
Mest lesið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira