Amazon gefur út bækur Viktors Arnars 24. mars 2011 06:00 kom á óvart Rithöfundurinn Viktor Arnar Ingólfsson segir að áhugi Amazon Crossing hafi komið sér mjög á óvart. fréttablaðið/gva „
Þetta kom mér mjög á óvart,“ segir rithöfundurinn Viktor Arnar Ingólfsson. Útgáfufyrirtækið Amazon Crossing, sem er í eigu bandaríska netrisans Amazon, hefur keypt útgáfuréttinn á þremur bókum Viktors Arnars. Flateyjargáta kemur út í Bandaríkjunum í haust, Engin spor í apríl á næsta ári og Afturelding í júlí sama ár. Amazon hefur einnig tryggt sér útgáfuréttinn á Galdri, skáldsögu Vilborgar Davíðsdóttur. „Maður hefur litið þannig á að Bandaríkjamarkaður væri óvinnandi vígi og það tæki því ekki að streða við að komast þangað en þarna er alveg nýr vinkill á útgáfu sem er gaman að skuli vera kominn til,“ segir Viktor Arnar. Fréttablaðið greindi frá því á dögunum að Amazon Crossing ætlaði að gefa út tíu bækur eftir tíu íslenska höfunda bæði í prentuðu og Kindle-rafbókarformi í tilefni af heiðurssessi Íslands á bókamessunni í Frankfurt í haust. Nú er ljóst að bækurnar verða fleiri en tíu og eru það góð tíðindi fyrir íslenskar bókmenntir. Með því að gera þriggja bóka samning við Viktor sýnir fyrirtækið að það ætlar ekki að tjalda til einnar nætur í samstarfinu við Ísland. Eitt lykilatriðið í vali Amazon á bókum Viktors og Vilborgar eru umsagnir lesenda á heimasíðum þess í mismunandi löndum. Fyrrgreindar bækur þeirra eiga það einmitt sammerkt að hafa hlotið frábærar umsagnir á þýsku Amazon-síðunni en þar í landi hafa bækur Viktors selst í um 150 þúsund eintökum. Aðspurður segist hann ekki fá fúlgur fjár fyrir samninginn við Amazon Crossing, enda séu rithöfundar yfirleitt láglaunafólk. Heiðurinn sé fyrst og fremst mikill. Hann býst ekki við að ferðast til Bandaríkjanna til að kynna bækurnar en mun ræða þau mál betur við starfsfólk Amazon á bókamessunni í Frankfurt í haust.- fb
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira