Batman-hópurinn klár 22. mars 2011 08:00 Joseph Gordon-Levit mun leika skúrkinn Alberto Falcone í The Dark Knight Rises.
Þriðja myndin í Leðurblökumanns-flokki Christopher Nolan er beðið með mikilli eftirvæntingu enda sló Dark Knight eftirminnilega í gegn fyrir tveimur árum. Fyrrum barnastjarna verður í hlutverk aðalskúrksins. Joseph Gordon-Levitt hefur hreppt hlutverk vonda gæjans í kvikmyndinni The Dark Knight Rises sem er þriðja og væntanlega síðasta mynd Christopher Nolan um Leðurblökumanninn. Levit og Nolan þekkjast ágætlega því leikarinn fór með stórt hlutverk í hinni stórkostlegu Inception. Hann mun leika Alberto Falcone, son glæpaforingjans Falcone sem Leðurblökumaðurinn drap í Batman Begins, fyrstu mynd Nolan um riddara næturinnar. Christian Bale verður að sjálfsögðu Bruce Wayne, milljarðarmæringurinn í ofurhetju-gallanum og Óskarskynnirinn Anne Hatheway bregður sér í þröngan latex-búning Kattakonunnar. Breski leikarinn Tom Hardy mun síðan leika skúrkinn Bane.Anne leikur Kattakonuna.Gordon-Levit sagði við fjölmiðla að hann væri himinlifandi með að hafa fengið hlutverkið og ekkert síður að fá tækifæri til að endurnýja kynnin við Nolan. „Hann er leikstjóri sem kann að segja sögur og hann veit að sama hversu umhverfið er mikilfenglegt má hið mannlega aldrei gleymast." Nolan virðist hafa tröllatrú á Gordon-Levit því hann þarf að feta í illmenna-fótspor Heath Ledger sem fékk Óskarinn fyrir túlkun sína á Jókernum í síðustu mynd. Joseph Gordon-Levit á ansi merkilegan feril að baki í Hollywood en hann er fyrrum barnastjarna og fékk sitt fyrsta hlutverk aðeins sjö ára. Hann lék lengi vel í vinsælum sjónvarpsþáttum á borð við Rosaenne og 3rd Rock from the Sun auk þess að bregða fyrir í fremur óeftirminnilegum b-kvikmyndum. Honum hefur hins vegar gengið betur en mörgum barnastjörnum að halda sig frá meðferðarheimilum og ofneyslu áfengis og ferill hans hefur tekið mikið stökk uppá við með kynnum sínum við Christopher Nolan og nafn hans verður eflaust á allra vörum sumarið 2012. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Sjá meira