Á toppnum á tveimur stöðum 22. mars 2011 05:00 Yfir fjórtán þúsund manns hafa séð Okkar eigin Osló á aðeins þremur vikum.fréttablaðið/arnþór „
Maður vonaði alltaf að það kæmi fólk að sjá myndina en ég bjóst ekki við að þetta gengi svona vel strax,“ segir Reynir Lyngdal, leikstjóri Okkar eigin Osló. Gamanmyndin er í efsta sæti yfir aðsóknarmestu myndir landsins með rúma 14.400 áhorfendur þrátt fyrir að hafa aðeins verið sýnd í tæpar þrjár vikur. Titillag myndarinnar í flutningi Valdimars Guðmundssonar og Memfismafíunnar er sömuleiðis efst á vinsældarlista Rásar 2 og er Okkar eigin Osló því á toppnum á tveimur stöðum samtímis. „Þetta er lítil og sæt saga, lítill sólargeisli. Hún fjallar um meingallað fólk sem meinar vel og fólk vonandi finnur sjálft sig í þessu fólki,“ segir Reynir, sem ætlar að leikstýra annarri gamanmynd með sama hópi og gerði Okkar eigin Osló og er Þorsteinn Guðmundsson þegar byrjaður að skrifa handritið. Til stendur að sýna Okkar eigin Osló í Noregi, enda eru norskir meðframleiðendur að henni og líklega verður það síðar á þessu ári. Einnig er verið að vinna í að sýna hana á kvikmyndahátíðum erlendis. Reynir er með tvær aðrar myndir í bígerð en óvíst er hvenær þær verða tilbúnar. Annars vegar mynd eftir bók Auðar Jónsdóttur, Fólkinu í kjallaranum, og hins vegar mynd eftir draugasögu Gerðar Kristnýjar, Garðurinn, eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá. Reynir vinnur handritið að Fólkinu í kjallaranum með eiginkonu sinni Elmu Lísu Gunnarsdóttur. Líklega mun Ólafur Egilsson, sem annast leikgerð verksins í Borgarleikhúsinu, verða þeim innan handar. -fb
Mest lesið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira