Lífið

Dæmir ekki aðra

Claire Danes varar fólk við því að dæma aðra of glatt.
Claire Danes varar fólk við því að dæma aðra of glatt.
Leikkonan Claire Danes sagði í nýlegu viðtali að fólk ætti að varast það að dæma aðra og þá sérstaklega konur sem kjósa að fara í lýtaaðgerðir.

„Ég er enn ung að árum og kemst upp með ýmislegt en við skulum sjá hvernig þetta þróast. Mér finnst gott að hugsa til þess að konur skuli hafa svo mikið val í dag. Svo lengi sem fólk gerir sér grein fyrir áhættunni og velur sér færan lækni finnst mér ekkert að því að leggjast undir hnífinn. Þetta eru oftast vel ígrundaðar og mjög persónulegar ákvarðanir og því finnst mér fólk ekki eiga að dæma aðra, kjósi þeir að fara þessa leið,“ sagði leikkonan í nýlegu blaðaviðtali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.