Baka brauð af mikilli ástríðu 14. mars 2011 10:00 Hjónin Guðrún Margrét Jóhannsdóttir og David Nelson reka saman þrjú bakarí í Barcelona undir nafninu BarcelonaReykjavík Bakery.
Hjónin Guðrún Margrét Jóhannsdóttir og David Nelson reka saman þrjú lífræn bakarí í Barcelona undir nafninu BarcelonaReykjavík Bakery. Fyrsta bakaríið opnuðu þau árið 2006 og fyrstu þrjár vikurnar gáfu þau hvert einasta brauð sem þau bökuðu. Hvorugt þeirra hjóna hefur lært bakaraiðnina heldur er Guðrún Margrét skúlptúristi og útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2000 og David er trésmiður og iðnhönnuður að mennt. „Ég var að læra keramík í Árósum árið 2002 og ákvað að sækja helgarnámskeið í bakstri hjá dönskum bakara. Hann kenndi óhefðbundinn brauðbakstur þar sem áhersla var á lífræn hráefni og hollustu. Á þessum tíma vorum við hjónin orðin svolítið þreytt á listinni og ákváðum að prófa eitthvað nýtt. Það er fyndið til þess að hugsa að maður sé enn að borga af námslánum fyrir fjögurra ára nám heima en að ég vinn núna við bakstur eftir helgarnámskeið í því,“ segir Guðrún Margrét og hlær. David er aðalbakari bakarísins og þar starfar enginn iðnmenntaður bakari heldur fólk með áhuga á bakstri. Bakaríið er það eina sinnar tegundar í borginni og viðurkennir Guðrún Margrét að móttökurnar hafi komið henni ánægjulega á óvart. Fyrstu vikurnar sem bakaríið var starfrækt gáfu hjónin viðskiptavinum brauðin til þess að fá álit þeirra á vörunni og að sögn Guðrúnar borgaði það sig margfalt. „Við fengum álit viðskiptavina og þeir sögðu okkur hvað mætti gera öðruvísi. Fólk varð líka mjög hrifið af brauðinu okkar og fréttirnar spurðust hratt út og við fjölskyldan urðum eins og rokkstjörnur, stanslaust í fjölmiðlum.“ Guðrún Margrét segir hjónin hafa áhuga á því að opna fleiri bakarí í framtíðinni og útilokar ekki að eitt slíkt verði opnað á Íslandi. Hún segist þó vilja fara hægt í sakirnar enda sé betra að fara sér að engu óðslega í svona málum. „Núna er ég að læra að búa til skó og mér finnst það voðalega gaman. Kannski ég staldri aðeins við í því núna,“ segir hún að lokum hlæjandi. -sm
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fleiri fréttir Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Sjá meira