Helga Lilja á tískuvikunni í New York 15. mars 2011 20:00 Helga fékk jákvæð viðbrögð við hönnun sinni. Fréttablaðið/Valli
Fatahönnuðurinn Helga Lilja Magnúsdóttir tók þátt í sölusýningu í tengslum við tískuvikuna í New York sem fram fór í febrúarlok. Þar frumsýndi hún nýja haust- og vetrarlínu sína en Helga Lilja hannar undir heitinu Helicopter.Helicopter, haust 2011.„Ég ætlaði upphaflega að taka þátt í sölusýningu á tískuvikunni í London en það datt upp fyrir og þá ákvað ég að sækja um á tískuvikuna í New York og fékk þar inni," útskýrir Helga Lilja. Hún segir móttökurnar hafa verið góðar og að margir hafi sýnt hönnun hennar áhuga. „Móttökurnar voru mjög jákvæðar og ég fékk einnig nokkrar góðar umfjallanir á tískubloggum þannig þetta gekk allt rosalega vel." Haustlínan er að sögn Helgu Lilju ekki svo ólík því sem hún hefur verið að gera hingað til og inniheldur sömu stóru og þægilegu sniðin en aðra liti og meira af prjónaflíkum.Helicopter, haust 2011.Helga Lilja stefnir á að fara aftur til New York í lok sumars þar sem hún mun sýna vorlínu næsta árs auk þess sem hún hyggst taka þátt í tískuvikunni í París í sömu erindagjörðum. „Mér fannst ég ekki alveg nógu vel undirbúin fyrir New York-ferðina núna þar sem ég hafði lítinn undirbúningstíma. En næst ætla ég að koma fersk inn og halda áfram að kynna mig fyrir mögulegum kaupendum," segir Helga Lilja að lokum. - sm
Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira