Óbeislaður kynþokki Þorsteins felldi Bieber 8. mars 2011 09:00 „
Kynþokkinn var of mikill fyrir ungstirnið. Þessi óbeislaði, þroskaði kynþokki íslenska grínistans," segir Þorsteinn Guðmundsson, höfundur og aðalleikari gamanmyndarinnar Okkar eigin Osló. Okkar eigin Osló var frumsýnd fyrir helgi og fór beint á topp aðsóknarlistans um helgina. Rúmlega 4.000 manns sáu myndina, sem skaut söngvaranum Justin Bieber og mynd hans Never Say Never, niður í fimmta sæti listans. Árangurinn er áhugaverður í ljósi þess að Bieber-æði var lýst yfir í Fréttablaðinu fyrir helgi. Ungar stúlkur sem aldnar þyrptust á myndina og komu margar grátandi út eftir að hafa séð kanadíska hjartaknúsarann á hvíta tjaldinu. En lendir Þorsteinn í því að grátandi stúlkur hrópi nafn hans á götum úti? „Ekki svo mikið, sko," segir hann og hlær. „Ég finn samt fyrir því, í fullri hreinskilni, þegar ég fer í matvöruverslanir og svona, að fólk á erfitt með að horfa í augun á mér. Það er eins og það fari alltaf að horfa á rassinn á mér eða líti á mig sem eitthvert kjötflykki. Ég er með tilfinningar. Ég er manneskja. Þetta er óþægilegt." Þorsteinn er gríðarlega ánægður með viðtökurnar á Okkar eigin Osló, en myndin er sú fyrsta sem hann fer með aðalhlutverkið í. „Ég er bara svo feginn," segir hann. „Maður er að skila af sér verki og við fáum fínar viðtökur og fjórar stjörnur hjá flestum gagnrýnendum, sem er ekki algengt með gamanmyndir." - afb
Mest lesið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira