Sjö manneskjur í fagráði Airwaves 7. mars 2011 15:00 Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Airwaves, er ánægður með hið nýja fagráð hátíðarinnar.
í fagráði Söngkonan Hafdís Huld er meðlimur í fagráði Airwaves-hátíðarinnar. „Ég er mjög ánægður með þetta. Hugmyndin er að reyna að bæta festivalið og gera það skemmtilegra,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves. Fagráð Airwaves hefur verið stofnað og er það skipað sjö aðilum, flestum úr tónlistargeiranum. Um er að ræða tónlistarmanninn Benedikt Reynisson, Hildi Maral Hamíðsdóttur viðburðastjóra, Steinþór Helga Arnsteinsson hjá Senu, söngkonuna Hafdísi Huld, Magnús Trygvason Eliassen úr Amiinu, Egil Harðarson ritstjóra Rjómans.is og Sunnu Viðarsdóttur, tónlistaráhugamann og tónleikagest til margra ára. „Þetta er algjörlega óformlegur vettvangur. Við erum að velta fyrir okkur ýmsu hvort sem það eru tónleikastaðir, hljómsveitir og upplifun. Við viljum leyfa fólki úr ýmsum áttum að tjá sig um það,“ segir Grímur. Ráðið hefur þegar fundað einu sinni og mun hittast einu sinni í mánuði þar til hátíðin hefst í haust. Fagráðið hefur ekki neitunarvald og ætlunin er að fólki verði skipt út með nokkuð reglulegu millibili. Þátttaka Sunnu Viðarsdóttur í ráðinu vekur athygli, enda hefur hún ekki starfað áður í tónlistarbransanum. „Ég þekki hana ekki neitt. Hún hefur komið á ofboðslega mikið af viðburðum á tíu eða tuttugu ára tímabili. Við viljum reyna að hafa líka fólk sem kemur ekki úr neinni ákveðinni kreðsu,“ segir Grímur.- fb
Mest lesið Viðskila í London eftir að hafa hent vegabréfinu í ruslið Ferðalög Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Lífið Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Lífið Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Lífið Helvítis jólapizzan slær í gegn á Eldofninum Lífið samstarf Fleiri fréttir Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Sjá meira