Lygilegt langlífi Spaugstofunnar 5. mars 2011 11:00 400 þættir Spaugstofan sýnir 400. þátt sinn á Stöð 2 í kvöld. fréttablaðið/valli „
Þetta er auðvitað lygilegt,“ segir leikarinn Karl Ágúst Úlfsson. Fjögur hundraðasti þáttur Spaugstofunnar verður sýndur á Stöð 2 í kvöld. Þættirnir hófust í Ríkissjónvarpinu árið 1985 og hafa verið sýndir við miklar vinsældir allar götur síðan, eða í 26 ár. „Upphaflega, þegar við gerðum samning um að gera vikulega fréttaþætti, réði Hrafn Gunnlaugsson, þáverandi dagskrárstjóri, okkur til að gera fjóra þætti til reynslu. Hann sagði að ef þeir virkuðu væri hann til í að framlengja samninginn. Núna eru þeir sem sagt orðnir fjögur hundruð,“ segir Karl Ágúst. Þátturinn í kvöld verður með örlítið breyttu sniði en undanfarið. „Við búum okkur til verðlaunaafhendingu sem minnir kannski á Óskarinn eða Edduna. En við erum kannski að verðlauna fyrir aðra hluti en á þeim ágætu hátíðum.“ Aðspurður segir hann að veturinn hjá nýjum vinnuveitanda hafi gengið með ólíkindum vel. „Við erum mjög ánægðir og það var tekið mjög vel á móti okkur á nýjum vinnustað.“ Hann segir áhorfið einnig mjög viðunandi, að því hann best veit. Fjórir þættir eru eftir af Spaugstofunni á þessum vetri. Karl Ágúst og félagar fara í frí í lok mars en snúa aftur á skjáinn næsta haust, enda undirrituðu þeir tveggja ára samning við Stöð 2 í fyrra. - fb
Mest lesið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira