Óttar fær ekki að skjóta Mulan 4. apríl 2011 08:00 Slæmur félagsskapur? Mulan er önnur kvikmynd Óttars með Jan de Bont sem hætt er við. Kvikmyndatökumaðurinn hugsar sig eflaust tvisvar um næst þegar de Bont hringir. Fréttablaðið/Valli
Hætt hefur verið við gerð kvikmyndarinnar Mulan, sem Jan de Bont átti að leikstýra. Óttar Guðnason kvikmyndatökumaður hafði verið ráðinn til að stjórna upptökum myndarinnar en nú er ljóst að af verkefninu verður ekki. Óttar vildi ekki tjá sig við Fréttablaðið um málið, sagði þetta vera hrakfallasögu frá upphafi til enda. Samkvæmt fréttum frá Hollywood hafa framleiðendur myndarinnar ekki lagt árar í bát en ólíklegt verður að teljast að nokkuð verði af gerð myndarinnar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Óttar verður að hætta við jafn stórt verkefni á vegum de Bont. Hann hafði undirbúið tökur fyrir hasarmyndina Stopping Power í Berlín þar sem John Cusack átti að leika aðalhlutverkið ásamt fleiri stórum stjörnum. Óttar var þá búinn að æfa bílaeltingarleiki og annað sem prýðir flottar hasarmyndir en það getur dregið ansi snögglega fyrir sólu í Hollywood. Einn framleiðandinn sagði sig frá verkefninu og fljótlega voru allar tökuvélar stöðvaðar. Hið sama gilti um Mulan; Óttar var í Kína í rúman mánuð við leit að hentugum tökustöðum. Allt virtist ganga eins og í sögu, búið var að ráða Ziyi Zhang, stjörnu Crouching Tiger, en svo féll sprengjan og nánast fyrirvaralaust var hætt við gerð myndarinnar. De Bont er hvað þekktastur fyrir kvikmyndir sínar Speed, Twister og Lara Croft Tomb Raider: The Cradle of Life en hann hefur átt í erfiðleikum með að fjármagna kvikmyndir undanfarin ár.- fgg
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Sjá meira