Gaf sjálfri sér sigurinn í afmælisgjöf 4. apríl 2011 15:00 Laufey Haraldsdóttir er fyrsta stelpan til að vera í sigurliði Gettu Betur. „
Hún er ennþá að síast inn, þessi sigurtilfinning,“ segir Laufey Haraldsdóttir, einn þriggja liðsmanna í Gettu betur-liði Kvennaskólans í Reykjavík. Liðið bar sigurorð af liði MR í spurningakeppni framhaldsskólanna á laugardagskvöld í beinni útsendingu Sjónvarpsins í æsispennandi keppni. Úrslitin réðust á síðustu spurningu en Laufey segir sjálf að hún og liðsfélagar hennar, þeir Bjarki Freyr og Bjarni Lúðvíksson, hafi eflaust verið þau rólegustu í salnum. Laufey á afmæli í dag, verður nítjan ára og það var því varla hægt að hugsa sér betri afmælisgjöf, að hrifsa míkrafóninn sögufræga úr höndum erkifjendanna í MR. Árangur Laufeyar er hins vegar enn merkilegri í ljósi þess að henni tókst loksins að rjúfa þykkan karlamúr spurningakeppninnar. Því í langri sögu Gettu betur hefur engin stelpa verið í sigurliði. Laufey viðurkennir að sú staðreynd sé eilítið yfirþyrmandi. „Hún er eiginlega fjarstæðukennd en mjög góð.“ Laufey fór hina hefðbundnu leið í Gettu Betur-liðið, fór í inntökuprófið og var meðal þriggja efstu. Hún upplýsir jafnframt að fjölskyldan elski spurningaleiki, þau séu hálfgerð nörda-fjölskylda sem spili Trivial Pursuit af miklum móð og horfi á Gettu betur saman í sófanum og keppa innbyrðis sín á milli. „Og þá tapaði ég alltaf,“ segir Laufey sem getur hins vegar gengið stolt um stofugólfið heima eftir frækna frammistöðu á laugardagskvöldinu. Gettu Betur og þátttakan í þeirri keppni þykir ákaflega tímafrek og raunar tímaþjófur frá námi en Laufey lætur það hins vegar ekkert á sig fá. Því hún hafði varla tíma til að spjalla, hún situr nefnilega í stjórn leikfélags Kvennaskólans sem er á fullu við að undirbúa frumsýningu. Og eins og það sé ekki nóg þá var Laufey einnig í Morfís-liði skólans sem tapaði fyrir Versló í sextán-liða úrslitum keppninnar. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira