Innlent

Jesús fæddist í Betlehem af því að mamma hans var þar

Jónas Margeir Ingólfsson skrifar
Ofsaveðrið í gærkvöld virðist ekki hafa haft mikil áhrif á kirkjusókn Íslendinga. Kirkjubekkirnir voru víðast hvar þétt setnir þó færri höfðu mætt í aftansönginn.

Íslendingar létu veðrið ekki aftra sér í gærkvöld en þeir prestar sem fréttastofa ræddi við sögðu kirkjusóknina góða. Eittvað færra var þó á sumum stöðum í aftansöngnum klukkan sex en flestir voru sammála um bekkurinn hafi verið þétt setinn, og þá sérstaklega í miðnæturmessunum.

Hjálmar Jónsson, dómkirkjuprestur, segist hafa búist við færra fólki vegna viðvarana um ofsaveðrið.

„Þetta leit nú ekki vel út í gær fram eftir aðfangadeginum því það var hávaðarok og í útvarpinu var verið að tala um að fólk ætti ekki að vera á ferðinni. Það voru um 400 í aftansöngnum klukkan 18," segir Hjálmar Jónsson, dómkirkjuprestur í Reykjavík.

Margir hafi jafnframt hlustað á messu í útvarpi eða horft á hana í sjónvarpi því á sumum stöðum var aftansöngnum aflýst vegna veðurs. Engu að síður hafi fjölmargir lagt leið sína í kirkjurnar.

„Eins og ég segi þá var yfirfullt klukkan sex, ég er ánægður að sjá hversu margir komu þrátt fyrir að úti væri hált svell."

Hann segir aftansönginn alltaf jafn hátíðlegan.

„Það tilheyrir að heyra óþreyjuhljóð í börnunum jafnvel þegar þau eru að hugsa, sem maður hugsaði í gamla daga: Er þetta ekki að verða búið?"

Þá segir hann að börnin hafi alltaf skýra sýn á jólin.

„Það var hérna einu sinni í kirkjunni, þá var ég að að fara yfir jólaguðsspjallið með börnunum og það var hérna leikskóli. Ég spurði börnin afhverju fæddist Jesús í Betlehem? Þá svaraði eitt barnanna: Nú af því mamma hans var þar, það var ekkert flóknara," segir Hjálmar að lokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×