Siv á víða undir högg að sækja Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. apríl 2011 13:23 Siv Jensen varð líka að skotspæni skopmyndateiknara. Mynd/ afp.
Það er víðar en á Íslandi sem stjórnmálamenn sem heita Siv hafa orðið að skotspæni skopmyndateiknara að undanförnu. Í norska blaðinu Verdens Gang birtust á dögunum myndir af Siv Jensen, formanni Framfaraflokksins þar í landi. Þar er hún sýnd uppi í rúmi með Mullah Krekar, sem er vafasamur íraskur kúrdi sem fékk hæli í Noregi. Framfaraflokkurinn er hins vegar þekktur fyrir að hafa varan á þegar málefni útlendinga eru annars vegar. Guðni Ölversson, sem býr í Noregi, sagði frá teikningunni af Siv í Reykjavík síðdegis í gær. „Þessi mynd sýnir það hvað Siv Jensen meinar með því að fólk lagi sig að norskum lögum og norskum reglum og bara yfir höfuð samfélaginu," segir Guðni. Hann segir að Siv og Krekar hafi eldað grátt silfur saman um árabil. Krekar er vafasamur náungi að sögn Guðna. „Hann er ágætiskunningi bin Laden," segir Guðni. Fáa menn vilji bandarísk yfirvöld frekar hafa hendur í hári. „Hann er hættulegur norsku samfélagi. Hann gerir ekkert til að aðlaga sig norsku samfélagi. Hann veður hér um með hótanir,“ segir Guðni. Krekar hafi hótað því að ef hann verði rekinn úr landi þá verði formaður hægriflokksins einfaldlega drepinn af því að hún hafi einu sinni látið þau orð falla að hann ætti hvergi heima annarsstaðar en í sínu eigin heimalandi.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Sjá meira