Hráki í gervigrasinu sýkir sár íþróttafólks 19. október 2011 06:00 Auk þess sem sýkingarhætta er vandamál er mikið svifryk í húsinu, sem einnig verður rakið til þess að grasið hefur ekki verið þrifið. Mynd/sævar geir sigurjónsson
Mörg dæmi eru um að íþróttaiðkendur hafi fengið sýkingar í sár eftir að hafa dottið í gervigrasið í íþróttahúsinu Boganum á Akureyri. Ástæðan liggur í því að gervigrasið hefur ekki verið sótthreinsað eða þrifið frá því að húsið var opnað fyrir átta árum. Nú hefur verið brugðist við vandanum í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra. Sigfús Ólafur Helgason, formaður íþróttafélagsins Þórs og umsjónarmaður í Boganum, benti á þetta vandamál í viðtali við N4 Sjónvarp á mánudagskvöld. „Jú, þetta er rétt. Það er staðreynd að grasið hefur ekkert verið þrifið. Fyrstu árin var húsið ekki upphitað, og þá bar ekki á neinu, en nú eru kjöraðstæður fyrir allskonar óáran til að lifa í grasinu. Það er ekki að undra þegar hráki, blóð og sviti blandast saman í grasinu yfir langan tíma,“ segir Sigfús. Töluvert hefur borið á sýkingum í sárum sem iðkendur íþrótta í húsinu fá eftir byltur á gervigrasinu. Sigfús segir það athugunarleysi að grípa ekki inn í strax. „Menn gátu sagt sér þetta sjálfir. Það þarf auðvitað að þrífa þessi hús eins og önnur íþróttamannvirki. Þetta kemur inn á borð hjá okkur eftir prufur sem heilbrigðiseftirlitið gerir,“ segir Sigfús, sem bendir á að uppfylla þurfi kröfur um heilbrigði og hollustuhætti í íþróttahúsum þar sem er gervigras eins og í öðrum íþróttamannvirkjum. Sigfús segir að sýkingavaldar í grasinu séu ekkert skemmtiefni og verði raktir til umgengni við húsið. „Menn hrækja í grasið eins og ekkert sé sjálfsagðara og þangað er upprunans að leita.“ Sigfús telur að vandinn sem kominn er upp í Boganum sé ekkert einsdæmi. Á landinu séu mörg íþróttahús af svipaðri gerð og aðstæður og umgengni þar sé í engu frábrugðin því sem er á Akureyri. Alfreð Schiöth, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra, segir að ekki séu til reglugerðir um þrif í fjölnota íþróttahúsum og á gervigrasi. Hins vegar séu íþróttahúsin á ábyrgð eigenda sinna; í nær öllum tilvikum sveitarfélaganna. Spurður um hve oft þurfi að þrífa gervigras, og þá sérstaklega með tilliti til sýkingahættu, segir Alfreð erfitt sé að meta slíkt. Hins vegar mætti nota það sem þumalputtareglu að stór hreinsun væri gerð einu sinni til tvisvar á ári. „Síðan kæmu til minni þrif eftir þörfum, enda notkun þessara húsa mismunandi.“ svavar@frettabladid.is
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira