Skildu fórnarlambið eftir með alvarlegar innvortis blæðingar 19. október 2011 10:20 Fórnarlambið hefur verið útskrifað af gjörgæsludeild
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið útskrifaður af gjörgæsludeild Landsspítalans eftir að hafa legið þar um hríð á milli heims og helju, eftir fólskulega líkamsárás fjögurra karlmanna á hann á sunnudagskvöldið. Greint var frá málinu í Fréttablaðinu í morgun. Mennirnir fjórir ruddust inn í iðnaðarhúsnæði, sem þolandinn hefur til umráða og gengu þar í skrokk á honum með höggum og spörkum og skildu hann eftir stórslasaðan, meðal annars með alvarlegar innvortis blæðingar. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirmanns rannsóknadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu virðast þeir hafa komið gagnert til að misþyrma manninum, fremur en að ósætti hafi risið af samskiptum þeirra á staðnum. Þolandinnn var fluttur á slysadeild og um tíma var tvísýnt um líf hans vegna blæðinganna. Tveir árásarmannanna voru handteknir aðfararnótt mánudags og hinir síðar, en þeim var svo öllum sleppt að loknum yfirheyrslum í gær, en þá var búið að úrskurða tvo þeirra í gæsluvarðhald. Að sögn Friðriks Smára þekktu árásarmennirnir þolandann ekki persónulega þótt þeir hafi talið sig eiga ótilgreindar óuppgerðar sakir við hann. Árásarmennirnir þekkjast hinsvegar vel, en tilheyra þó ekki neinum sérstökum félagsskap. Þeir eiga allir afbrotaferil að baki, meðal annars fyrir ofbeldi.
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira