Vorgleði í klæðaburði Eurovisionfaranna 26. mars 2011 14:00 Prjónahönnuðurinn Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir ætlar að klæða sönghópinn, Vini Sjonna, í frísklega liti í Þýskalandi. Fréttablaðið/Vilhelm „
Við erum byrjuð að leggja drög að klæðaburði sönghópsins i Düsseldorf og það verður ekkert svart að þessu sinni. Bara litir og gleði,“ segir prjóna- og fatahönnuðurinn Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir en hún hefur yfirumsjón með klæðaburði Eurovision-faranna í Vinum Sjonna. Undirbúningur fyrir för hópsins til Þýskalands er á fullu þessa dagana. Guðrún Ragna hefur einbeitt sér að prjónahönnun síðan hún útskrifaðist úr Listaháskólanum árið 2003 en þetta er í fyrsta sinn sem hún tekur að sér verkefni á borð við þetta. „Þórunn Erna Clausen, eiginkona Sigurjóns heitins Brink, er æskuvinkona mín og ég er mjög þakklát fyrir að hafa verið beðin um að taka þátt í þessu ævintýri með þeim.“ Guðrún Ragna segir að ekki verði mikil breyting á útliti strákanna eins og þeir voru í forkeppninni en áhersla verði lögð á skapa ákveðna tengingu við myndbandið „Það verður svipuð stemming og í myndbandinu. Lopapeysur og fínni klæðnaður.“ Guðrún segir mjög skemmtilegt að vinna með strákunum sex og að það sé mjög góður andi í hópnum. „Markmiðið með þessu verkefni er að öllum líði vel enda allir í ákveðnu sorgarferli og hópurinn mjög náinn,“ Guðrún Ragna viðurkennir jafnframt að hún sé laumu Eurovision-aðdáandi „Það verður gaman að fá að upplifa stemminguna þarna úti og kannski kemur maður heim alveg smitaður af Eurovision-veikinni.“ - áp
Mest lesið Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lífið Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Lífið Tvö maraþon eftir af sex: Úr þoku í sól, misörlátir ferðamenn og hálendið kvatt Lífið Kynferðisleg gremja, sænskur senuþjófur og náttúruklám Gagnrýni Breskur auðkýfingur brjálaður og norsku kafararnir of dýrir Lífið Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig Lífið Þetta borðar Lína Birgitta alla morgna Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið „Við munum aldrei leyfa minningu hennar að deyja“ Lífið Ríkulegt einbýlishús knattspyrnukappa falt fyrir 315 milljónir Lífið Fleiri fréttir Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Tvö maraþon eftir af sex: Úr þoku í sól, misörlátir ferðamenn og hálendið kvatt „Sjúllaður“ sítrónu og jarðaberja næturgrautur Draumadís Þórhildar og Hjalta komin í heiminn Svona verður dagskráin á Menningarnótt Breskur auðkýfingur brjálaður og norsku kafararnir of dýrir Nafn sonarins innblásið af Frakklandi Súrrealískt þegar Jay Leno vinkaði fjölskyldunni á Facetime Borgarstjóri fagnaði brúðkaupsafmæli með strætóferð og indverskum mat Svarar samskiptastjóra Trump sem kallaði hann lúser Þetta borðar Lína Birgitta alla morgna „Indælasti dómari í heimi“ er látinn Seiðandi víbrur sem virka í bólinu Þegar Jónas var jarðsettur hundrað árum eftir andlátið Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig „Pylsa“ sækir í sig veðrið Ómótstæðileg ítölsk steikarloka úr smiðju Hildar Rutar Opnar sig um sviplegt fráfall eiginmannsins „Lítið ömmugull á leiðinni“ hjá Siggu Lund Ríkulegt einbýlishús knattspyrnukappa falt fyrir 315 milljónir Langömmulán hjá Eddu Björgvins Kemur út sem pankynhneigð Vín mun hýsa Eurovision á næsta ári „Við munum aldrei leyfa minningu hennar að deyja“ Einfaldar leiðir til að róa taugakerfið Nýju fötin forsetans Erla og Ólafur selja glæsilegt einbýli í Vesturbænum Bubbi segir Hróa Hattar-brag á stuldinum Dúnmjúkir pizzasnúningar Sjá meira