Endist ekki ævin til þess að borga námslánin 10. júní 2011 10:18 ríkisendurskoðun.
Af þeim sem hófu endurgreiðslu námslána árið 2010 skulduðu um 16 prósent námsmanna meira en 6 milljónir króna og samtals rúmlega 40 prósent af heildarskuldum hópsins. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar þar sem lánasjóður íslenskra námsmanna (LÍN) er skoðaður. Þar kemur meðal annars fram að námslán afskrifast að fullu við andlát lánþega og þar sem endurgreiðsla þeirra er að hluta til tekjutengd ná þeir, sem taka há lán, en hafa meðaltekjur, ekki að endurgreiða lánin að fullu. Fram kemur að útlán LÍN hafi aukist verulega undanfarinn áratug vegna fjölgunar lánþega og hækkunar lánsfjárhæða. Árið 2001 lánaði sjóðurinn um 4,3 milljarða króna til námsmanna en sú upphæð var komin upp í um 15,7 milljarða árið 2010. Ríkissjóður ber rúmlega helming kostnaðar vegna útlána sjóðsins. Að mati Ríkisendurskoðunar þarf að tryggja að skólagjaldalán vegna náms við íslenska skóla séu ekki hærri en raunkostnaður kennslunnar. Einnig telur stofnunin að þrengja eigi reglur um skólagjaldalán vegna náms erlendis. Þá sé eðlilegt að réttur til námslána takmarkist við tiltekinn aldur, t.d. 18–50 ár, líkt og gert er víða erlendis. Hámarkslán til námsmanns eigi að miðast við að einstaklingur með meðaltekjur næði að greiða það upp fyrir 60 ára aldur. Ríkisendurskoðun telur einnig núverandi fyrirkomulag óhentugt. Fram kemur að sjóðurinn leggur sjálfur mat á lánshæfi náms en bæði stjórnendur sjóðsins og Ríkisendurskoðun telja það fyrirkomulag óheppilegt. Í skýrslunni er lagt til að menntamálayfirvöld skipi sérstaka nefnd til að annast þetta verkefni. Slíkar nefndir starfa annarsstaðar á Norðurlöndunum. Einnig er lagt til að einungis verði veitt lán vegna náms sem uppfyllir skilgreindar gæðakröfur menntamálayfirvalda en dæmi eru um að sjóðurinn hafi veitt lán vegna náms sem ekki gerir það. Hægt er að nálgast skoðunina hér.
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Sjá meira