Natalie Portman sögð hafa dansað lítið í Black Swan 28. mars 2011 06:00
Ballerínan Sarah Lane, sem var dansstaðgengill Natalie Portman í Black Swan, segir Portman lítið hafa dansað í myndinni. Hún steig fram eftir að unnusti Portman eignaði henni stærstan hluta dansatriðanna. Natalie Portman fékk í febrúar Óskarsverðlaunin fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Black Swan. Eftir að hún fékk verðlaunin virtu spruttu upp vangaveltur um meinta danshæfileika leikkonunnar, sem eru sagðir ótrúlegir miðað við að hún hafði aðeins eitt og hálft ár til að undirbúa sig fyrir myndina. Danshöfundurinn Benjamin Millepied, unnusti Portman sem starfaði á tökustað Black Swan, sagði í viðtal við dagblaðið Los Angeles Times á dögunum að Portman hafi sjálf framkvæmt um 85 prósent af dansporunum í myndinni. Nú hefur ballerínan Sarah Lane stigið fram og fullyrt að Portman framkvæmi aðeins fimm prósent danssporanna í myndinni. Þá segir hún lítið gert úr ballettlistinni með því að segja að leikkona sem hefur rúmt ár til að undirbúa sig geti orðið jafn góð ballerína og sést í Black Swan. "Skotin sem sýna aðeins andlit hennar og hendur eru hún í raun og veru," sagði Lane í viðtali við Entertainment Weekly. "En þau sýna ekki raunverulegan dans." Lane sakar Ari Handel, framleiðanda Black Swan, um að segja henni að tala ekki um vinnu sína við fjölmiðla, jafnvel þó ekkert slíkt hafi komið fram í samningi sem gerður var við hana. "Þau vildu skapa hugmynd í höfði fólks um að Natalie væri einhvers konar undur - svo hæfileikaríkur dansari að eitt og hálft ár væri nóg til að gera hana að ballerínu. Þetta var gert útaf Óskarsverðlaununum," segir Lane. "En það er ekki bara móðgun við mig heldur alla stéttina. Ég er búin að vera að dansa í 22 ár." Eftir að Sara Lane steig fram sendi framleiðslufyrirtækið Fox Searchlight frá sér yfirlýsingu þess efnis að stærstur hluti dansatriðanna í Black Swan sé Portman sjálf að dansa. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira