Lýsi og oreganó gleðigjafar Karen Kjartansdóttir skrifar 10. febrúar 2011 19:57
Fiskneysla á meðgöngu getur gert börn greindari. Skort á omega-3 fitusýrum sem fást úr sjávarfangi má svo tengja þunglyndi hjá börnum og fullorðnum. Þetta segir Michael Clausen, barna- og ofnæmislæknir, sem hefur um árabil stundað rannsóknir á fæðuofnæmi og hefur mikinn áhuga á því hvernig fæða hefur áhrif á okkur. Hann segir að við getum beinlínis orðið glaðari við að borða sjávarfang og ef við kryddum matinn okkar með óreganó. „Menn hafa verið að skoða áhrifin á boðefnin í heilanum og hvernig heilinn virkar og starfar. Það er ýmislegt í fæðunni sem getur haft áhrif á virkni hans. Allar frumuhimnur í líkamanum og heilanum eru gerðar úr fitusýrum sem við fáum úr fæðunni sem við borðum. Þessar fitusýrur hafa svo áhrif á það hvernig okkur líður því yfir frumuhimnurnar fara öll skilaboð. Ef í líkamanum er of mikið af fitusýrum sem virka ekki vel á þig eru skilaboðin ekki hagstæð fyrir heilann. Omega-3 fitusýrur, sem við fáum helst úr sjávarfangi, hafa mjög jákvæð áhrif á líkamann, draga til dæmis úr bólgum. Omega-6 sýrurnar, sem við fáum úr kjötvörum, hafa hins vegar öfug áhrif. Það er því betra fyrir okkur að fá meira af fyrrnefndu fitusýrunum," segir Michael. Michael segir miður að gríðarlega hafi dregið úr fiskneyslu undanfarin ár og þar með neyslu á omega-3 fitusýrum, þar sem síðarnefndu fitusýrurnar tengist mjög vellíðan og geðprýði. Í nýjasta hefti Læknablaðsins bendir hann auk þess á að komið hafi í ljós að þá sem svipti sig lífi skorti oft omega-3 fitusýrur. Tengja megi skort á þeim beint við þunglyndi hjá börnum og fullorðnum. Þá vitnar hann í rannsókn á mæðrum sem tóku lýsi á meðgöngu, sem hann segir hafa sýnt ótvírætt fram á að neysla lýsis hafi jákvæð áhrif á hegðun og þroska barnanna við fjögurra ára áldur. Í þeirri rannsókn hafi um 12 þúsund börnum verið fylgt eftir og hún hafi leitt í ljós að fiskneysla á meðgöngu hafði mælanleg áhrif á greind barnanna. En það er fleira sem getur gert okkur glöð. Ýmis krydd geta gert okkur gott. Michael nefnir að rannsókn, sem kynnt var í desember og gerð var á dýrum, gefi góðar vísbendingar um að óreganókrydd geti haft nánast sömu áhrif á heilann og geðdeyfðarlyf hafa. „Það er því ekki bara maturinn heldur líka krydd lífsins sem skipta okkur máli," segir Michael.
Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Fleiri fréttir Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Sjá meira