Innlent

Undirmenn hjá Hafrannsókn kallaðir á samningafund

Undirmenn á skipum Hafrannsóknastofnunar, sem hafa verið í verkfalli í rúman mánuð, hafa verið kallaðir til fundar við viðsemjendur hjá Ríkissáttasemjara í dag, eftir nokkurt hlé.

Þeir hafa verið með lausa samninga í þrjú ár og ber mikið í milli í viðræðunum. Undirmennirnir vilja meðal annars fá bætta skerðingu stjórnvalda á sjómannaafslættinum svonefnda, sem er skattaívilnun til sjómanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×