Dæmdur í Noregi, kærir á Íslandi 7. maí 2011 07:00 Vítisengill dæmdur Leif Ivar Kristiansen hefur verið dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi í heimalandi sínu en stendur í skaðabótamáli við íslenska ríkið.
Leif Ivar Kristiansen, forsprakki Vítisengla í Noregi, var í gær dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnamisferli og rán. Hann stendur nú í skaðabótamáli við íslensk stjórnvöld vegna frávísunar úr landi í fyrra. Á vef Verdens Gang kemur fram að Kristiansen var annars vegar sakfelldur fyrir aðild sína að stóru fíkniefnamáli þar sem tæp tíu kíló af hassi voru gerð upptæk og hins vegar rán. Sannað þótti að hann hefði með hótunum fengið háar fjárhæðir frá vitorðsmönnum sínum í fíkniefnamálinu. Hann sagðist myndu áfrýja dómnum. Kristiansen rekur nú skaðabótamál gegn íslenska ríkinu eftir að hann var handtekinn við komuna til landsins í febrúar í fyrra og vísað úr landi eftir einnar nætur vist í fangaklefa. Vinni hann það mál verður það ekki í fyrsta sinn sem ríkinu er gert að greiða vélhjólamönnum skaðabætur því að meðlimum MC Iceland vélhjólaklúbbsins voru dæmdar skaðabætur að upphæð 700.000 krónum vegna ólögmætrar handtöku. MC Iceland fékk inngöngu í Hells Angels fyrr á þessu ári, en meðlimir klúbbsins segjast ekki tengjast glæpastarfsemi. - þj
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Sjá meira