Rífur í sig frumvarp samflokksmanna 5. nóvember 2011 04:00 Gísli Marteinn telur samflokksmenn sína á þingi úti að aka í flugvallarmálinu. Fréttablaðið/anton „
Hvað sem mönnum finnst um staðsetningu flugvallarins er það óþolandi ríkisforsjá að lögfesta flugvöll í Vatnsmýri." Svo skrifar Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sína um nýtt lagafrumvarp sem níu samflokksmenn hans og þrír framsóknarmenn hafa lagt fram á Alþingi. Frumvarpið, sem Jón Gunnarsson mælir fyrir, kveður á um að miðstöð innanlandsflugs skuli vera áfram í Vatnsmýri og gegna hlutverki varaflugvallar fyrir millilandaflug. Gísli Marteinn segir sveitarfélög hafa ákvörðunarvald í eigin málum samkvæmt stjórnarskrá. „En forræðishyggjan í þessari tillögu ætlar að taka þann rétt af Reykvíkingum. Svo er frumvarpið vandræðalega illa unnið og órökstuddum fullyrðingum slegið fram í greinargerð af algerri vanþekkingu," bætir hann við. Þetta sé helber dónaskapur og yfirgangur af hálfu fulltrúa ríkisvaldsins og allir borgarfulltrúar muni mótmæla frumvarpinu. Jón Gunnarsson leggur orð í belg á síðunni. Hann segist vita af andstöðu borgarfulltrúa flokksins en frumvarpið sé hins vegar í samræmi við ályktanir landsfundar. „Í þessu tilfelli tel ég réttlætanlegt að Alþingi taki af skarið í þessu máli," segir hann. „Farðu rétt með Jón," segir Gísli. „Landsfundur hefur sagt að flugvöllur skuli vera á höfuðborgarsvæðinu, einhvern tíma var meira að segja sagt stór-höfuðborgarsvæðinu. Það er allt annað en að heimta að hann skuli vera einmitt á þeim stað sem hann er nú." - sh
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Innlent „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sjá meira