Herramenn þakklátir fyrir fjárstuðning 5. nóvember 2011 20:38 Kristinn hyggst kenna Íslenskum karlmönnum að koma almennilega fyrir. Fréttablaðið/Valli
Þrír framtakssamir piltar stefna að því að gefa út 64 blaðsíðna leiðarvísi fyrir herramenn fyrir jólin. Útgáfuna fjármagna þeir á frumlegan hátt sem þeir kalla hópfjármögnun. Á tveimur vikum hafa safnast 250 þúsund krónur með framlögum almennings. Bókin mun bera heitið Litla herramennskukverið. Með henni vill Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, sem skrifar bókina, berja inn í samlanda sína fágaða og „séntilmannlega" framkomu. „Herramaðurinn veit hvernig hann á að haga sér í öllum aðstæðum. Hversu undarlegar sem aðstæður geta orðið mun herramaður alltaf koma vel fyrir," segir Kristinn, og þessa listgrein mun hann útskýra í kverinu. Hópfjármögnun virkar þannig að fólk getur gefið smáar upphæðir á netinu til stuðnins verkefninu. Fyrir stuðninginn fá styrktaraðilar gjöf, hverrar verðmæti ræðst að upphæð styrkjanna. Kristinn segir styrkina koma úr öllum áttum. „Við sjáum hverjir eru að styrkja okkur. Maður hefði kannski ímyndað sér að þetta væru allt ættingjar eða vinir, en svo er ekki. Við þekkjum auðvitað einhverja, en svo er þetta mikið til bara ókunnugt fólk sem hefur séð þetta í fréttum." Bókaútgáfa er dýrt fyrirtæki og því sáu félagarnir ekki fram á að geta fjármagnað þetta verkefni nema á þennan áhugaverða hátt. Hingað til hefur verkefnið gengið framar vonum, og stefnir í að útgáfan takist. „Við erum að vonum mjög þakklátir fyrir þessar viðtökur og gaman að sjá hversu opnir Íslendingar virðast vera fyrir hópfjármögnun," segir Kristinn. Þegar hefur safnast upp í helming þeirrar upphæðar sem þörf er fyrir útgáfuna. Ef hins vegar ekki safnast nægjanlegur peningur í tæka tíð verður hætt við útgáfuna og styrktaraðilar fá endurgreitt. Fyrir þá sem vilja kynna sér verkefnið bendum við á vefsíðu þess: http://herramennska.pozible.com
Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Innlent Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Erlent Inga of upptekin til að funda: Foreldrahúsi verður lokað innan tveggja vikna Innlent Fleiri fréttir Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: Foreldrahúsi verður lokað innan tveggja vikna „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Sjá meira