Ríkissjóður fái tíu til ellefu milljarða króna í sölu og arð 12. ágúst 2011 04:00 Landspítalinn fór rúmlega 19 milljarða fram úr fjárheimildum á 6 ára tímabili, frá 2003 til 2009. Það nemur 9 prósenta framúrkeyrslu. fréttablaðið/hari
Gert er ráð fyrir að afla 10 til 11 milljarða á næsta ári með sölu ríkiseigna og arðgreiðslum úr þeim fyrirtækjum sem ríkið á hlut í. Þetta mun, gangi það eftir, verða meginhluti þeirrar tekjuaukningar sem ríkisstjórnin hyggur á; en alls er gert ráð fyrir 14 milljörðum króna í nýjar tekjur. Skorið verður niður um sömu upphæð og því stoppað upp í alls 28 milljarða af fjárlagagatinu. Meðal annarra tekna sem reiknað er með er hækkun veiðileyfagjalds, en gert er ráð fyrir að það skili sjö milljörðum í stað þeirra 4,5 sem áður hafði verið reiknað með. Þar með bætast 2,5 milljarðar við fyrri áætlanir. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur einnig sagt að skattar á banka og stóriðju verði hækkaðir. Á árunum 2009 til 2011 hafa ríkisútgjöld dregist saman um 121,4 milljarða króna. Það stendur undir 58,6 prósentum af bættri fjárhagsstöðu ríkisins, en á sama tíma hafa tekjur ríkisins aukist um 85,9 milljarða króna. Nýjar tekjur á árinu 2011 námu 11 milljörðum króna. Ef rýnt er í ríkisreikninga fyrri ára kemur í ljós að ríkisreksturinn bólgnaði út skömmu fyrir hrun. Árið 2006 námu heildarútgjöld ríkisins rúmum 340 milljörðum króna. Árið 2007, þegar ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks tók við, námu þau tæpum 398 milljörðum króna. Sú upphæð var rúmir 467 milljarðar árið 2008 og nam síðan tæpum 569 milljörðum króna árið 2009, en það ár tók ríkisstjórn Samfylkingar og VG við. Ef rýnt er í einstaka málaflokka sést að viðtekin venja var að fara fram úr fjárheimildum víða í ríkiskerfinu. Þannig fóru heilbrigðisstofnanir á landinu tæpa 33 milljarða fram úr fjárheimildum á árabilinu 2003 til 2009. Stjórnarflokkarnir hafa mismunandi áherslur í tekjuöflun og um það var tekist á sameiginlegum þingflokksfundi á mánudag. Fallið var frá breytingum á virðisaukaskattskerfinu og ákveðið að afla tekna með sölu ríkiseigna.- kóp
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fleiri fréttir Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Sjá meira